29 apríl 2007

Einbeiting

Skúli og Hlynur voru í heimsókn þessa helgi og á föstudaginn kom Brynja í heimsókn og var ekki svo lítið hrifin af að hitta frændur sína. Hlynur fékkst til að lesa fyrir hana og ekki skortir einbeitinguna hjá Skúla og Brynju undir lestrinum. Síðar meir fór Brynja í fótbolta með guttunum.
Posted by Picasa

12 apríl 2007

Hún Helena Brynja er sautján ára í dag

Já það er ótrúlegt en satt að hún Helena Brynja er orðin sautján ára. Það er ekki svo langt síðan finnst mér að við Brynja komum til Þýskalands þegar hún kom í heiminn. En svona er lífið - tíminn flýgur áfram. Við sendum okkar kæru hbh innilegustu hamingjuóskir með daginn um leið og við óskum henni alls hins besta í framtíðinni. Og Helena Brynja - takk fyrir skemmtilega heimsókn á Kirkjuveginn um páskana. Myndin sýnir svo minnstu Brynjuna horfa með athygli á nöfnu sína og ekki skemmdi það fyrir að það var verið að opna páskaeggin!! Posted by Picasa

11 apríl 2007

Komin heim heil á húfi

Þessi myndarlegi hópur kom í Leifsstöð að morgni 11. apríl eftir langt ferðalag frá LA - hafandi þá dvalið vestra í góðu yfirlæti við að heimsækja kunningja. Mikið golfað og þó nokkuð skoðað. Hrannar og Halla heilsuðu m.a. uppá Keflvíkinginn Inga Haralds í San Diego og urðu þar fagnaðarfundir. Á myndinni eru frá vinstri talið: Ásta, Ásgeir, Gylfi, Sigrún, Hrannar og Halla. Posted by Picasa