26 desember 2005

Karlpeningurinn

Vísað er í textann í næsta bloggi fyrir framan! Posted by Picasa

Jóladagur á Kirkjuveginum

Hin árlega jólafjölskylduhátíð fór fram á Kirkjuveginum á jóladag. Að þessu sinni var öll fjölskyldan til staðar og hér á myndinni má sjá kvenlegginn - sérselga glæsilean hóp! Sún yngsta stal senunni eins og við mátti búast. Að loknu miklu hangikjötsáti var tekið til við að spila Trivial Persuit og eftir tvær umferðir og óhemju jafna keppni stóð karlpeningurinn að þessu sinn uppi með pálmann í höndunum. Ákaflega skemmtilegur dagur. Posted by Picasa

20 desember 2005

Heima um jólin


Jæja, Hilma er komin heim í jólaleyfi og var henni að sjálfsögðu vel fagnað. Hér má sjá þegar Hlynur var búinn að gera sig kláran til að fara á jólaball í skólanum sínum og fóru Hilma og Skúli einnig með. Þau ´gista nú öll þrjú í Keflavík og er ávallt mikið fjör því nú gegnir bílskúrinn hlutverki leikfimisalar þar sem leikinn er fót- og körfubolti með smá tennisívafi! Þar fyrir utan er svo hægt og bítandi unnið að undirbúningi jólanna með gjafainnpökkun, jólatrésviðskiptum, kökubakstri, jólakortum o.fl. Mjög gaman allt saman og alls ekki neitt stress sem sem svo margir vilja tengja við jólin þessa dagana. Já svo var líka í dag jólamáltíð starfsfólks við Stóru-Vogaskóla og gekk það mjög vel. Bless í bili. Posted by Picasa

01 desember 2005

Ritstjórar Faxa og starfsmenn Stapaprents


Þann 29. nóv. hlaut Faxi menningarverðlaun Reykjanesbæjar og þar með verðlaunagripinn Súluna eftir Elísabetu Ásberg. Við þetta tækifæri var fyrri ritstjórum og starfsmönnum Stapaprents boðið á Faxafund á skrifstofum Birgis Guðnasonar en þar hefur nú Faxi aðsetur. Á myndinni eru frá vinstri: Emil Wilhelmsson prentari, Magnús Gíslason (ritstjóri 1972-9), Svavar Ellertsson prentari, Helgi Hólm (ritstjóri 1987-2002), Guðni Björn Kjærbo (ritstjóri 2002-5) og Eðvarð T. Jónsson núverandi ritstjóri. Posted by Picasa

25 nóvember 2005

Bionic verkefni Hlyns

 Posted by Picasa

Ungur vísindamaður!


Hlynur er hér á fullu að setja saman Bionicverk sem hann fékk sent frá mömmu sinni. Hann stóð sig vel í því eins og sést á myndinni hér að framan. Posted by Picasa

Þau yngstu í heimsókn

Um daginn fengum við góða heimsókn. Bræðurnir Skúli og Hlynur gistu um síðustu helgi og þá kom einnig Brynja í heimsókn. Það fór vel á með þeim eins og vænta mátti og var Brynja mjög hrifin af ,,stóru" frændunum sínum. Posted by Picasa

24 nóvember 2005

And away we go!!!!


Mánudaginn 21. nóvember 2005 lögðu þær mæðgurnar, Brynja og Hlín, flugvél undir fót og flugu til Atlanta til að heimsækja Hilmu. Þær voru, eins og greinilega sést á myndinni, léttar á brá og hugðu gott til glóðarinnar. Ferðalagið tók heldur lengri tíma en áætlað var en til Hilmu komust þær. Þegar þetta er skrifað eru þær nýbúnar að innbyrða thanksgivingturkey að USAsið. Mér heyrist allt ganga vel hjá þeim og mun viðskiptajöfnuði þeirra kanverja líða snöggtum betur þessa dagana!! Posted by Picasa

17 nóvember 2005

Dúndurleikur hjá Keflavík


Eftir að hafa séð Keflavíkurhraðlestina hökta í undanförnum leikjum þá var maður ekki um of bjartsýnn á að liðið myndi ná að vinna upp 18 stiga forskot andstæðinganna frá fyrri leik liðanna. Fyrri leik Keflavíkur og BK Riga í Evrópukeppninni lauk með 99-81 sigri Lettanna í heimavelli þeirra. Til að eiga möguleika á að komast áfram í riðlinum þá varð að vinna leikinn í kvöld með a.m.k. 19 stigum. Það var mikil stemming í íþróttahúsinu, m.a. mátti sjá þar um 100 manna stuðningslið Lettanna. En að leiknum sjálfum. Eftir frekar rólega byrjun sáum við lestina góðu hrista af sér slenið og allt var sett á fullt. Og viti menn! Í leikhléi var staðan orðin 60-40 fyrir Keflavík! Það var næstum því sama hver kom inná, allir voru að gera sína bestu hluti. Gunnar Einarsson sem átt hefur frekar slappt haust var gríðarlega sterkur í leiknum, bæði í vörn og sókn. A.J., Arnar Freyr, Magnús, Sverrir, Zslatko, Halldór, Gunnar Stef. Allir sem einn. Lokatölur urðu 114-91 - ótrúlegt en satt og liðið heldur áfram í keppninni. Til hamingju strákar!!!! Posted by Picasa

14 nóvember 2005

First Lego Leque á Íslandi


Laugardaginn sl. fórum við Brynja að fylgjast með keppni í Lego Leque en þar kepptu lið frá Myllubakkaskóla við fjölda annarra liða. Krakkarnir stóðu sig vel enduðu í 5. sæti. Posted by Picasa

11 nóvember 2005

Blómið opnar sig!


Jæja, þá hefur blóðið góða opnað sig, glæsilegt ekki satt? Posted by Picasa

08 nóvember 2005

Brynja og baunagrasið

Við Brynja eignuðumst í haust einstaklega skrítið blóm. Það var reyndar bara rótin þegar við fengum það og fylgdu þær leiðbeiningar með að með því að setja það í vatn myndi það blómgast eftir tvo mánuði, haldast í blóma ákveðinn tíma og geymast síðan í dvala fram að næstu törn. Fyrir nokkrum vikum settuð við blóðmið í vatn og það var eins og við manninn mælt, það fór að vaxa þessi líka svaka stilkur. Hann er nú orðinn hátt í metra á hæð og nú er farið að sjást í blóm! Brynja litla var mjög hissa á þessu aöllu saman. Posted by Picasa

04 nóvember 2005

Af litlum kvisti ........


Ég fór inn að Skjaldarkotslágum fyrir stuttu og notaði þá tækifærið til að skoða árangurinn af gróðursetningu nemenda Stóru-Vogaskóla á undanförnum árum. Það má sjá að þótt plönturnar dafni misvel þá má víða sjá ágætan vöxt. Síðasta vor var plantan á þessari mynd sett niður og til að tryggja sem best hennar viðgang þá var glaðinn um hana skjólveggur. Verður forvitnilegt að fylgjast með henni næstu árin. Posted by Picasa

24 október 2005

Ljósadýrð á Berginu


Þegar við Brynja vorum að koma heim frá afmæli Helga Benna varð geysilega fallegt veður. Þegar við ókum norður Hafnargötuna blasti við okkur ljósin á Berginu og síðan var hálft tungl þar úti við sjóndeildarhringinn og sást aðeins fáeinum tuga metra ofan við bergbrúnina. Við skutumst heim og náðum í myndavél. Þessi mynd er tekin á tíma og þessutan hreyfði ég vélina í ógáti. Útkoman var nokkuð skemmtileg fannst mér. Posted by Picasa

Hilma og Inga Birna með annan tvíbura þeirra Helga Þórs og Margétar. Myndin tekin af Guðrúnu mömmu IB í afmæli dætra IB þann 23. okt. 2005 Posted by Picasa

20 október 2005

Hrókurinn í heimsókn


Það er orðinn árlegur viðburður að góðir gestir frá taflfélaginu Hrókurinn koma í Stóru-Vogaskóla og heimsækja 3. bekk. Þá fá nemendur góða skákbók að gjöf og síðan fá þau að tefla fjöltefli við gestina. Hrafn Jökulsson var mættur með fleiri með sér og var þetta mjög skemmtileg stund fyrir krakkana. Eiga þeir félagar og þá sérstaklega Hrafn bestu þakkir skildar fyrir það merkilega fræðslustarf sem þeir standa fyrir. Posted by Picasa

Sólarupprás á haustdegi


20. október og ég á leið í vinnuna. Fallegt haustveður og sólin að koma upp. Þetta eru fallegar stundir ef svo mætti að orði komast. Posted by Picasa

18 október 2005

Afmæli Brynju 17. október 2005


Já Brynja átti afmæli í gær eins og lög gera ráð fyrir. Ýmsir litu við í tilefni dagsins. Hér má sjá þau systkinin Þorstein og Guðrúnu. Guðrún flutti kveðjur og fréttir frá Ingu en hún hafði heimsótt Ingu í Arizona þangað sem Inga er nýflutt til. Um kvöldið komu svo börn og barnabörn sem áttu heimangengt. Var þetta hinn skemmtilegasti dagur. Posted by Picasa

Sparkvöllur við Stóru-Vogaskóla


Þessa dagana er verið að ganga frá sparkvelli við Stóru-Vogaskóla í samvinnu við KSÍ. Að mínu mati er hér um mikinn happafeng því völlurinn verður örugglega mikið nýttur af nemendum og öðrum bæjarbúum. Yfirlag vallarins er með svonefndu sandgrasi en það er gervigrasmotta með 4 cm háum þráðum. Þegar búið er að leggja teppið á völlinn þá er blöndu af sandi og gúmmíkornum dreift yfir og myndast þá gott yfirborð fyrir fótboltaleik. Fyrirtækið sem leggur grasið er þýskt en þeir sem vinna verið koma frá Slóvakíu og Portugal. Posted by Picasa

14 október 2005

Og maður stækkar


Já, ég er orðin svooona stór, segir Brynja. Posted by Picasa

Víkingasverðið


Nú er búið að setja upp á hringtorgi í Innri-Njarðvík mikið og stórt víkingasverð sem Geir Karlsson hefur smíðað. Þetta á að minna á að þar skammt frá mun rísa safn um víkingatíma norrænna manna. Er ekki ólíklegt að það verði komið upp á næstu tveimur árum. Posted by Picasa

12 október 2005

Barnabörnin sjö


Jæja. Loksins tókst að ná mynd af þeim öllum sjö. Þetta gerðist í afmæli hjá Hákoni á nýja heimilinu þeirra Gísla og Hrundar. Þarna ber fyrstan að nefna Skúla, þá Helgu, síðan Helga Benna og Helena Brynja heldur á nöfnu sinni sem varð einmitt 8 mánaða þennan dag. Svo koma Hugi og Hlynur. Myndarlegur hópur ekki satt. Posted by Picasa

Viðbygging við Stóru-Vogaskóla

Við upphaf skólaárs haustið 2005 var ný viðbygging tekin í notkun við skólann. Hafist var handa við byggingu haustið 2004 og átti allt að vera tilbúið þann 5. ágúst en ýmislegt bættist við á leiðinni svo þau tímamörk stóðust ekki. Hvað um það þá er hér um glæsilega byggingu að ræða. Þar eru sex rúmgóðar kennslustofu, raungreinastofa með ágætum búnaði, sérkennslustofa, stór og bjartur mat- og samkomusalur svo eitthvað sé nefnt. Það er mjög ánægjulegt að þessi viðbygging sé risin og er full ástæða til að óska íbúm hreppsins til hamingju með hana sem og öllum þeim sem þar nema og starfa. Posted by Picasa

Keilir blasir við á hverjum degi

Það vill brenna við að það sem blasir við manni á hverjum degi vill gleymast. Ég hef ekki bloggað um tíma en hef hugsað mér að taka til við það aftur. Skjóta inn myndum og fabulera aðeins í leiðinni. Fylgist með!!!

Helgi Posted by Picasa

04 mars 2005


#

Skilaboð sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

07 febrúar 2005

Barnabarn nr. sjö!!

Alveg er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Mér finnst það alls ekki mjög langt síðan að Hrund og Gísli tilkynntu að þau ættu von á barni. Síðan hefur ,,hele familien" fylgst spennt með framvindu meðgöngunnar enda hefur Hrund verið einstaklega dugleg við að leyfa okkur að fylgjast með. Fyrir nokkuð löngu vissum við að von var á stúlku og þótti okkur Brynju það stórgott því þá jöfnuðust aðeins hlutföllin meðal barnabarnanna: 3 stúlkur - 4 piltar. Eins og að líkum lætur þá veita blessuð barnabörnin birtu og yl inn í okkar tilveru og reynum við að vera sem mest í sambandi við þau. Það eru ávallt skemmtilegar stundir þegar allir safnast saman saman á Kirkjuveginum. Og nú er sem sagt lítil stúlka fædd. Fram að fæðingu hefur hún verið kölluð Geirlaug en í væntanlegri skírn (fljótlega að ég held) mun hún fá annað nafn til framtíðar. Litla daman er mjög myndarleg, vóg 12 merkur rúmar og mældist 49 sm að lengd. Mjög heilbrigt og fallegt barn með þetta líka mikla hár. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og óskum þess að framtíð hennar og foreldranna verði sem björtust.

Á heimasíðu Hrundar (hrundholm.com) má svo sjá myndir af dömunni.

Þegar þetta er skrifað er undirritaður staddur að Reykjum í Hrútafirði í skólabúðum með bekkinn minn. Meira um það síðar.