27 janúar 2007

Hlynur lærir að prjóna.

Nú um helgina höfum við þá Hlyn og Skúla í heimsókn. Hlynur sagði ömmu sinni frá því að hann ætti að fara að læra að prjóna á mánudaginn. Þeim fannst því tilvalið að taka forskot á sæluna og hér má sjá árangurinn sem náðist eftir ekki langan tíma. Gott hjá þér Hlynur. Posted by Picasa

Á Bettsýningunni í London

Um daginn fórum við Brynja til London og var tilgangurinn að skoða tækniö og kennslusýninguna BETT. Það var mjög skemmtilegt. Þar sáum við m.a. margar snallar lausnir í tölvuborðum. Á þessu borði renna tölvurnar ofan í borðið þegar notkun er lokið. Posted by Picasa