26 febrúar 2006

Svona gerir maður ekki!!

Ábending til unga fólksins
Svona lítur planið vð Ný-Ung og Aðalbíla út eftir hverja helgi. Ástæðan er auðvitað sú að þegar þið eruð að spjalla saman í bílunum ykkar þá finnst ykkur allt í lagi að henda öllu ruslinu ykkar beint út um gluggann og út á planið. Ég trúi því ekki að þið vitið ekki hvað þið eruð að gera, þið mynduð nú varla henda öllu rusli á eldhúsgólfið heima hjá ykkur. Þetta er algjör SÓÐASKAPUR og ætti ekki að sjást. Vinsamlegast safnið ruslinu ykkar saman og hendið því á viðeigandi stöðum. Posted by Picasa

22 febrúar 2006

Lambahryggur í Granaskjólinu

Einn eftirmiðdaginn var hringt og þá var það Bjössi að bjóða í lambahrygg í Granaskjólinu. Við settumst upp í nýja fákinn hennar Brynju og brenndum í bæinn. Vorum á leiðinni að tala um að við gætum kannski hringt í Skúla og Hlyn og fengið þá til að skjótast yfir. En þá vildi svo skemmtilega til að þeir voru í heimsókn í Granaskjólinu og var mjög gaman að hitta þá. Létu þeir vel af sínum hag. Meðfylgjandi mynd af Skúla og Huga var tekin við þetta tækifæri. Gaman var líka að hitta Hlín, Bjössa, Helgu og Huga - allir í góðu formi. Og ekki klikkaði lambahryggurinn frekar en fyrri daginn.

Bestu þakkir. Posted by Picasa