27 febrúar 2007

Fuglaskari á Fitjum

Í gær fór Brynja litla með okkur inn á Fitjar í Ytri-Njarðvík og vorum við vopnuð brauðhleif úr Valgeirsbakaríi. Það var stillt í veðri en nokkuð kalt. Þarna voru margir fuglar, álftir, gæsir og endur svo eitthvað sé nefnt. Brynju leist vel á og var dugleg að kasta brauðbitum til fuglana. Undir lokin fannst henni nóg komið og fór að stinga bita og bita upp í sig. Eins og sjá má á myndinni var mjög skemmtileg og dulúðleg birta þarna við fuglapollinn. Sem sagt mjög skemmtileg heimsókn á fuglaslóðir. Posted by Picasa

03 febrúar 2007

Afmælisfagnaður Brynju tveggja ára



2. febrúar varð Brynja Hólm gísladóttir 2ja ára og þann 3. feb. var haldið upp á afmælið með pompi og pragt og komu margir til að heilsa upp á dömuna. Hér má sjá afmælisbarnið blása á kertin tvö á afmæliskökunni. Posted by Picasa