Það er löngu orðinn árviss viðburður hjá okkur hjónunum að mæta á Bókakonfekt sem Bókasafnið í Reykjanesbæ, Bókabúð Keflavíkur-Penninn og Menningarfulltrúi Reykjanesbæjar standa fyrir og oftast hinn fyrsta laugardag í jólaföstu. Upphaflega fór þessi viðburður fram í afgreiðslusal bókasafnsins en nú hefur það undið svo upp á sig að ekki dugir minni salur en list-sýningarsalur Duushúsa. Er þar mjög skemmtileg og viðeigandi umgerð um þessa athöfn. Á bókakonfekti er fólki boðið upp á að nokkrir rithöfundar lesa úr nýútkomnum verkum sínum, tónlistafólk treður upp með tónlist sína og þess utan er fólki boðið upp á kaffi og konfekt. Allt þetta undir öruggri stjórn Valgerðar Guðmundsdóttur menningarfulltrúa. Að þessu sinni lásu eftirfarandi úr verkum sínum: Sigmundur Ernir, Þráinn Bertelsson, Gerður Kristný og Jóhanna Kristjánsdóttir. Tónlist fluttu systkinin Ragnheiður og Haukur Gröndal. Þorsteinn Marteinsson bóksali var og á staðnum og gátu viðstaddir keypt viðkomandi bækur á tilboðsverði og aukinheldur fengið áritun höfunda. Þarf ekki að fjölyrða að allt fór hið besta fram, upplestur höfundanna mjög áhugaverður og fengu menn þar góðan nasaþef af bókunum og löngun til að lesa sjálfir meira. Tónlistaflutningurinn var engu síðri því þarna voru á ferðinni gríðarlega efnilegir tónlistamenn. Sérstaklega var gaman að heyra Ragnheiði flytja sönglög við ljóð Ingibjargar Þorbergsdóttur sem einnig var á staðnum (77 ára). Ég hafði síðan tækifæri til að kynnast Ingibjörgu lítilsháttar eftir athöfnina því ég varð fyrir því óláni að bakka á bílinn hennar og þurfti að fylla út tjónaskýrslu af því tilfelli. Komst ég þá að því að þau hjónin eru flutt til Keflavíkur þar sem þau eiga gott skyldfólk (Skúli og Björn Víkingur eru bróðursynir hennar svo einhverjir séu nefndir).
Eftir þetta allt saman skaust ég að jólatrénu á Tjarnartorgi en þá var nýbúið að kveikja á ljósaseríum og jólasveinarnir voru að halda á braut. Þar hitti ég Guðrúnu Árna með hluta af barnabörnunum
Hér má sjá myndir frá þessum viðburðum: http://www.helgiholm.net/bokakonfekt.htm
Látum þetta gott heita í bili.
04 desember 2004
29 nóvember 2004
Hana nú
Ég hef fengið hvatningu um að láta merkið ekki niður falla og halda áfram að blogga reglulega. Spurt var á heimasíðunni minni hvort ekkert væri að gerast hérna suðurfrá. Hér er ávallt eitthvað að gerast. Við Brynja brugðum okkur í Reykjavík eftir vinnu á föstudag og dunduðum okkur í nokkra tíma, keyptum nokkrar jólagjafir o.fl. Enduðum síðan á matsölustað í Hafnarfirði og vorum ekki komin heim fyrr en kl. níu um kvöldið. Á laugardeginum svaf Brynja frameftir lengur en elstu menn muna en eftir hádegið fórum við með Hrund í bæinn því hún var að fara á Haustfund dýralækna. Við dunduðum okkur smávegis í viðbót og skoðuðum m.a. jólaþorf í Hafnarfirði og tókum þátt í tíu ára afmæli Fjarðar í Hafnarfirði. Við fréttum af því að Helgi Benni var að keppa í fótbolta og Hugi í körfu og voru þeir báðir að standa sig mjög vel. Þegar heim var komið eldaði ég súpu og familían á Heiðarbrautinni mætti og síðan Gísli og Hrund í kaffi og ís. Á sunnudeginum mætti vinnuhópur til Brynju og ég fór að vinna í skólanum mínum, skrapp þá reyndar í aðventukaffi í Glaðheimum hjá foreldrafélagi leikskólans. Það var ágætt. Ég náði síðan á sunnudeginum að ljúka þeim heimilisstörfum sem ég átti eftir en Helenda Brynja, sem er að vinna sér fyrir utanlandsferð með líðinu sínu, kom á laugardeginum og ryksugaði. Um kvöldið fór ég síðan á leik Keflavíkur og Snæfells í bikarkeppninni en þar sá Snæfell aldrei til sólar en Keflavík sýndi hvers vegna þeir eru efstir í sínum riðli í Evrópukeppninni! Sem sagt góð og viðburðarrík helgi og ekki skemmdi það að við vorum nýbúin að fá tölvudisk með kvikmyndum af þeim Skúla og Hlyni í góðu formi.
Læt þetta nægja í bili.
Helgi
Læt þetta nægja í bili.
Helgi
10 nóvember 2004
Enn lengist verkfallið
Jæja 3. dagur í seinni törn og ekki séð fyrir endann.
Ekki bitu sveitarfélögin á agnið frá KÍ. Búið að fresta samningaviðræðum í
annan gang í tvær vikur. Þetta er augljóslega beiðni um utanaðkomandi
aðstoð án þess þó að segja það beint út. Mér finnst viðsemjendur okkar
vera að gugna á að ráða við málið ein og sér, nota okkur til að krefja
ríkið um meira fé. Kannski tekst það en því ekki að koma hreint fram?
Það verður fróðlegt að fylgjst með framvindu mála hjá landsfeðrum næstu
dagana.
Nóg í bili,
hh
Ekki bitu sveitarfélögin á agnið frá KÍ. Búið að fresta samningaviðræðum í
annan gang í tvær vikur. Þetta er augljóslega beiðni um utanaðkomandi
aðstoð án þess þó að segja það beint út. Mér finnst viðsemjendur okkar
vera að gugna á að ráða við málið ein og sér, nota okkur til að krefja
ríkið um meira fé. Kannski tekst það en því ekki að koma hreint fram?
Það verður fróðlegt að fylgjst með framvindu mála hjá landsfeðrum næstu
dagana.
Nóg í bili,
hh
20 október 2004
Kröfuganga og fundur
Mætti í kröfugönguna í dag og var síðan á fundinum á Ingólfstorgi. Þetta var mjög ánægjulegt hvort tveggja. Ég var mest ánægður með að engin henti í okkur eggjum eða tómötum í göngunni heldur var fólk hið vingjarnlegasta og veifaði til göngufólks. Ágæt dagskrá var á fundinum, góð ávörp og í lokin leiddi Þorvaldur okkar fjöldasöng við annan mann og stóð sig vel eins og eðlilegt var. Allt þetta sýndi samstöðu kennara og er engin vafi á að við munum ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Góðar fréttir berast úr Karphúsi, þ.e. að enn er verið að funda. Mín skoðun er sú að þess verði skammt að bíða að LN opni fyrir einhverjar frekari launahækkanir og að þá stökkvi Ásmundur til með sáttatillögu.
Látum þetta nægja í bili,
hh
Látum þetta nægja í bili,
hh
17 október 2004
Afmæli Brynju
Þá er Afmælið hennar Brynju yfirstaðið og tókst það ákaflega vel. Mjög margir
komu í heimsókn (100 +) og var ekki annað að sjá að öllum liði mjög vel.
Undir stjórn Ölmu flutti starfsfólk Myllubakkaskóla mikinn óð til Brynju
(skáld=Alma) og var gerður góður rómur að honum. Þá fór fram myndasýning
sem Helga og Helena Brynja áttu mestan heiður að. Þegar gestirnir voru
farnir þá sat fjölskyldan saman og Hlín las bréfið að ,,Westan" frá Hilmu og þá gat
afmælisbarnið ekki tára bundist. Síðan flutti Hrund erindi sem var að mestu í
bundu máli. Því næst voru hinar mörgu góðu gjafir skoðaðar og að því loknu
horfðu menn aftur á myndsýninguna saman.
Þessi skemmtilegi dagur gerði það að verkum að maður gleymdi að mestu leyti verkfallinu. Það er bara einlæg von mín að samninganefnd LN mæti til fundar á morgun með eitthvað bitastætt í farteskinu. Það gengur ekki til lengdar að bjóða næstum minna en ekki neitt.
Sjáumst á morgun við Karphúsið kl. 13:00
Helgi
komu í heimsókn (100 +) og var ekki annað að sjá að öllum liði mjög vel.
Undir stjórn Ölmu flutti starfsfólk Myllubakkaskóla mikinn óð til Brynju
(skáld=Alma) og var gerður góður rómur að honum. Þá fór fram myndasýning
sem Helga og Helena Brynja áttu mestan heiður að. Þegar gestirnir voru
farnir þá sat fjölskyldan saman og Hlín las bréfið að ,,Westan" frá Hilmu og þá gat
afmælisbarnið ekki tára bundist. Síðan flutti Hrund erindi sem var að mestu í
bundu máli. Því næst voru hinar mörgu góðu gjafir skoðaðar og að því loknu
horfðu menn aftur á myndsýninguna saman.
Þessi skemmtilegi dagur gerði það að verkum að maður gleymdi að mestu leyti verkfallinu. Það er bara einlæg von mín að samninganefnd LN mæti til fundar á morgun með eitthvað bitastætt í farteskinu. Það gengur ekki til lengdar að bjóða næstum minna en ekki neitt.
Sjáumst á morgun við Karphúsið kl. 13:00
Helgi
11 október 2004
Og nú er allt komið í strand
Við mættum á fund í H88 í morgun og þar mætti Unnur úr samninganefndinni og sagði okkur fréttir. Nefndirnar hafa verið að tala saman yfir helgina en enn hefur LN ekki komið með nokkuð bitastætt útspil. Lauk viðræðum á árangurs og verður ekki boðað til fundar fyrr en á miðvikudag. Maður er satt að segja kominn á þá skoðun að ekkert gerist fyrr en eftir mánuð í viðbót. Sveitarfélögin ætla sem sagt að semja undir mestri hugsanlegri pressu og fyrra sig ábirgðinni á því að taka með áræðni og sanngirni á kröfum kennara. Þegar á botninn er hvolft þá eru það fyrst og fremst byrjunarlaunin sem um er slegist. Eins og ég hef áður sagt þá eru launin of lág á Íslandi og byrjunarlaun menntað fólks allt of lág. Kennarar eiga nú möguleika ( í okkar mikla góðæri) að færa þessi laun upp á hærra plan og ég skora á þá alla að gefast ekki upp þótt á móti blási. Burtséð frá þessum vandamálum þá eru sem betur fer önnur viðfangsefni í deiglunni: Brynja Árnadóttir fyllir 6. tuginn n.k. sunnudag og er nú verið að undirbúa smá uppákomu í tilefni af því.
Látum þetta gott heita í bili.
Látum þetta gott heita í bili.
30 september 2004
Er skemmtilegt að vera í verkfalli
Þessa spurningu hefur maður fengið nokkrum sinnum, ekki síst frá afabörnunum sem kíkja til manns öðru hvoru. Svarið er því miður nei. Eftir því sem lengra líður á verkfallið þarf maður að leita dýpra eftir ástæðu til að stökkva fram úr á morgnana, reiðubúinn til að takast á við daginn. Maður var jú vanur að vera búinn að melta með sér hvað tekið skyldi fyrir í fyrstu tímunum. Það er jú ávallt eitthvað sem ekki tókst að ljúka í gær og var það ekki einmitt í dag sem við ætluðum að byrja á nýju verkefni sem lofaði svo góðu. Ég var kominn í svo góðan gír við að láta 7. bekkingana mína skila öllum sínum verkefnum með læsilegri, tengdri skrift. Þau spurðu:,,Til hvers þurfum við að skrifa tengda skrift?" Og ég svaraði:,,Þið eruð búin að vera að læra þessa skrift í mörg ár og eigið nú að ráða við hana og það á líka að vera ykkar metnaður að skrifa vel og læsilega." Og nú mögla fáir og ef einhver skilar verkefni og hefur ekki skrifað læsilega, tengda skrift þá fá þeir verkefnið til baka og þurfa að vinna það aftur. Þannig eru bara reglurnar. Og maður bíður spenntur eftir næsta verkefni til að sjá hvernig þetta virkar. Og þannig er það með mörg hin fögin líka - viðfangsefnin eru margvísleg og spennandi og maður gleðst þegar árangur er sýnilegur. Nei það er ekki skemmtilegt í verkfalli en við aðstæðurnar í dag í okkar kjarabaráttu er það nauðsynlegt og það má ekki gerast að því ljúki án þess að viðunandi lausn fáist. Sveitafélögin verða að forgangsraða upp á nýtt, gera vel við kennarastéttina og þá er öruggt að hún mun leggja sitt af mörkum við að byggja upp góða menntun í landinu. Ef aftur á móti kennarar koma aftur í skólann og verða að játa það fyrir nemendum sínum að menntun sé ekki metin að verðleikum á Íslandi þá kann það ekki góðri lukku að stýra.
Varð glaður þegar ég sá hvað kennarar mættu margir við Karphúsið, það hefur örugglega verið góður stuðningur við samninganefndina okkar og sömuleiðis góð áminning til launanefndarinnar.
Látum þetta duga í bili.
Helgi
Varð glaður þegar ég sá hvað kennarar mættu margir við Karphúsið, það hefur örugglega verið góður stuðningur við samninganefndina okkar og sömuleiðis góð áminning til launanefndarinnar.
Látum þetta duga í bili.
Helgi
27 september 2004
6. í verkfalli
Samkvæmt mínu verkfallstímatali þá er 6. í verkfalli að kvöldi kominn. Í dag sá ég mjög áhugaverðar upplýsingar varðandi launasamanburð en upp úr tölum frá kos - kjararannsóknarráð opinberra starfsmanna. Þar kom fram að þær tölur sem hafa verið nefndar sem meðallaun kennara eru reiknaða út frá launum kennara hjá Reykjavíkurborg. Þar eru allir stjórnendur taldir með (en þeir taka laun eftir annarri launatöflu en almennir kennarar) og einnig eru leiðbeinendur taldir með. Það verður þó að teljast líklegt að hvergi séu leiðbeinendur færri en í Reykjavík. Þetta getur því varla talist að vera heppilegt viðmið fyrir alla kennarastéttina. Þar sem Eiríkur Jónsson mætir á H88 í fyrramálið þá ætla ég að spyrja hann aðeins út í þetta. Einnig kom fram að heilmikill munur er á heildarlaunum kennara, hjúkrunarfræðinga og háskólam. BSRB-fólks. Náum við þar u.þ.b. 80%. Í eftirmiðdaginn mættu nokkrir Vogakennarar á fund hjá Höllu Guðmunds og var það ánægjulegt (mikið bakkelsi). Að lokum vil ég segja að ég er á þeirri skoðun á þessari stundu að þetta verkfall verði langt en við verðum bara að passa að halda ró okkar og ,,fara ekki á límingunum eins og nú er svo vinsælt að segja." Segjum þetta gott í bili.
25 september 2004
Stund milli stríða
Ég hef alltaf verið á móti því að kalla helgarnar frídaga frá vinnu, þ.e. að ég eigi frí í vinnunni um helgar. Ég hef ráðið mig til að vinna 1800 klukkustundir á ári og engar þeirra falla á helgar. Ég á þann tíma sjálfur og vinnuveitandi minn hefur ekkert með hann að gera og getur þar með ekki heldur gefið mér frí. Ergo. Þetta eru ekki ,,frídagar". Að þessu sögðu ætla ég loks að koma því að sem ég ætlaði að segja í byrjun: Í dag og á morgun er ég ekki í verkfalli en verð það líklegast á mánudag. Mer segir svo hugur um að þetta verkfall geti orðið nokkrar vikur og ég hef orð Finnboga fyrir því að hann ætli ekki að gefa eftir af kröfum okkar. ´Hitt er svo annað mál hvenær menn gefa eftir þeim þrýstingi sem nú er kominn fram í þjóðfélaginu. Allt í einu eru grunnskólabörnin í stórkostlegri hættu við að vera ekki í skóla í nokkrar vikur en ég minnist þess ekki að þau hafi verið í neinni sérstakri hættu á tímabilinu 1. júní til 23. ágúst en þá voru þau ekki heldur í skóla. Skrítið. Ekki eigum við að líta eftir börnunum á kvöldin og um helgar en ég sá ansi mörg ca. 12 - 13 ára börn á Hafnargötunni kl. 22:00 í kvöld! Menn eru farnir að krefjast þess að það ríkisstjórnin setji lög til að enda vekfallið en er það ekki Alþingi sem á að setja lög og erum við í þessari kjaradeildu að fara nákvæmlega eftir lögum um stéttarfélög og vinnudeilur sem Alþingi hefur sett. Hvað eru menn eiginlega að fara? En nóg að sinni. Í dag varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að hitta fyrrum samstarfsfólk mitt innan hinna Norrænu bankamannasamtaka en hópur sem kallar sig NBU veteraner hélt ársþing sitt hér um helgina. Og klukkan tíu í fyrramálið á ég stefnumót við vin minn Hörð Falsson og við ætlum að lemja litlar, hvítar kúlur fram og til baka á golfvellinum. Já það er ekki öll vitleysan eins. Nóg í bili - góða helgi.
Helgi
Helgi
24 september 2004
22 september 2004
3. dagur í verkfalli
Í dag var góð mæting í H88 því von var á Finnboga formanni FK. Vel á annað hundrað manns mættu til fundar og fóru fram líflegar og ágætar umræður. Ég læt fylgja hér með það sem samkennari minn, Þorvaldur Örn Árnason, sagði um fundinn: Sæl öll.Ég var á sama fundi og Guðbjörg (ég tók eftir henni!) Sá reyndar líkaHelga og Helga, Höllu, Þorberu, Ernu... man ekki eftir fleirum (nú verð églaminn), en það voru þarna vel yfir 100 manns saman komin í kjallaranum.Bara töluverð stemming.Formaður FG og hún Unnur okkar voru þarna bæði og úr varð heilmikillfundur. Finnbogi rifjaði upp sögu þessa samningaþjarks sem nær nú sennyfir meðal meðgöngtíma kvenna og kúa (hann er u.þ.b. sá sami). Ég komst aðþví að ég þarf að leggjast betur yfir heimasíðu KÍ og jafnvel líka hjáSambandi sveitarfélaga til að skilja vel um hvað málið snýst og vera færum að útskýra okkar mál fyrir hverjum sem vill ræða málið.Það var mikið spurt út í byrjendalaun og launamun, enda margir ungirkennarar (jafnvel enn yngri en Guðbjörg gæti ég trúað)á skelfilega lágukaupi með helling af námslánum og húsnæðislánum á bakinu. Þau upplýstu aðkröfur FG fælu í sér minni launamun en nú er, brottnám pottflokka og þak á9,13 svo eitthvað sé nefnt. Fram kom að það er mjög misjant eftir skólumog sveitarfélögum hversu brýnt sé að setja þak á 9,13. Engin úrStóru-Vogaskóla tjáði sig um það, en ég geri ráð fyrir að þetta sé ekkistórmál fyrir okkur.Við Inga Sigrún mætum á morgun - og vonandi margir fleiri.Vona að við eigum gjöfula daga framundan - hvernig sem á það er litið.
Eins og við er að búast veldur þetta verkfall mörgum óþægindum en það gera jú flest verkföll nema vera skyldi verkfall hjá þeim sem talar inn á fröken klukku! Nú vildja flestir taka verkfallsréttinn af kennurum og telja betra að láta kjaradóm ákeða kjörin. Ekki er ég svo viss um að það yrði til bóta. Ég heyrði síðan í fréttunum áðan að samningarbefnd sveitarf. ætlar ekki að mæta til fundar í fyrramálið með nýtt útspil. Þeir eru sjálfsagt að bíða eftir að kennarar samþykki 15,34% launahækkun á fjórum árum!! Ég segi nú bara eins og sumir ,,Come on".
Hef áfram nóg að gera og læt mér alls ekki leiðast, horfði t.d. á myndband af Ryderkeppninni frá því á sunnudaginn - dýrðlegt að sjá Evrópumenn yfirspila Bandaríkjamenn.
Kveð að sinni...
Eins og við er að búast veldur þetta verkfall mörgum óþægindum en það gera jú flest verkföll nema vera skyldi verkfall hjá þeim sem talar inn á fröken klukku! Nú vildja flestir taka verkfallsréttinn af kennurum og telja betra að láta kjaradóm ákeða kjörin. Ekki er ég svo viss um að það yrði til bóta. Ég heyrði síðan í fréttunum áðan að samningarbefnd sveitarf. ætlar ekki að mæta til fundar í fyrramálið með nýtt útspil. Þeir eru sjálfsagt að bíða eftir að kennarar samþykki 15,34% launahækkun á fjórum árum!! Ég segi nú bara eins og sumir ,,Come on".
Hef áfram nóg að gera og læt mér alls ekki leiðast, horfði t.d. á myndband af Ryderkeppninni frá því á sunnudaginn - dýrðlegt að sjá Evrópumenn yfirspila Bandaríkjamenn.
Kveð að sinni...
21 september 2004
Ágætur fundur í H88
Var að koma af fjölsóttum fundi í H88. Þar sat Unnur úr samninganefndinni fyrir svörum og urðu ágætar umræður um stöðu mála. Það kom okkur hér syðra talsvert á óvart hvað miklu púðri hefur verið er er enn eytt í umræður um hina svokölluðu 9,14 skilgreiningu. Það kemur sem sé í ljós að víða er þessi þáttur kjarasamningsins kennurum stórt vandamál því skólastjóra hlaði óspart ýmissi vinnu inn á þennan tíma. Kom mönnum saman um að slíkt vandamál væri ekki fyrir hendi á Suðurnesjum. Gerðumst sum okkar svo gróf að þetta væri vandamál kennara á hverjum stað, menn hefðu jú vinnuramma og gætu efalaust sýnt fram á hversu mikinn tíma hver og einn þyrfti til að ljúka þeim þáttum sem snéri að hverjum og einum áður en kæmi að sameiginlegum verkefnum. Við vorum þó hvött til að sýna samstöðu með félögum okkar. Lagt var til að þessu máli væri vísað til félagsdóms sem ágreiningi um framkvæmd kjarasamnings og málinu síðan vísað í nefnd sem myndi vinna að lausn eftir að nýr samningur væri kominn á. Voru menn almennt sammála um að beinar launahækkanir væru það sem setja ætti á oddinn, eða eins og Kjartan í Holtaskóla sagði:,,Hættið þessi væli og semjið um hærra kaup.!"
Góðar stundir
Góðar stundir
Annar í verkfalli
Í gær mætti ég á fyrsta fundinn í verkfallsmiðstöðinni að Hafnargaötu 88 hér í Keflavík. Þar voru mættir fjölmargir kennarar frá öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum. Skipulögð var heimsókn trúnaðarmanna í alla skólana og var sá háttur á að trúnaðarmenn fóru í sína eigin skóla. Tilgangurinn var að gera skrá yfir þá starfsemi sem væri í gangi í hverjum skóla. Helgi Már, trúnaðarmaður í Stóru-Vogaskóla, greip mig með sér sem ritara og fórum við bæði í skólann og íþróttahúsið. Þar var allt með kyrrum kjörum utan þess að nokkrum börnum hafði verið hleypt í sund á þeim tíma sem sundkennsla venjulega nýtir. Var starfsfólkinu gerð grein fyrir því að það væri ekki heimilegt. Eftir mjög skemmtilegar og uppbyggilegar umræður um gildi verkfalla, almenn kjör á Íslandi (sem allir voru sammála um að væru sllt of lág) kom fram að hér var um misskilning að ræða af hálfu starfsfólksins og verður þessu kippt í liðinn. Dagurinn leið síðan með ráfi í reiðuleysi um bæinn því erfitt var að koma skipulagi á það sem gera skyldi. Að lokum keypti ég þó rauða málningu og eftir kvöldmat málaði ég hjá mér gaflinn á húsinu. Morguninn í dag hefur svo farið í að lesa blöðin þar sem lögð er áhersla á að mikið beri á milli og þar sem Kristjá Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri segir að kjaradeilda kennara sé illskiljanleg. Það kemur að vísu ekki á óvart eftir ýmis undarleg útspil frá blessuðum manninum undanfarnar vikur. Nú er bara að sjá hvað þessi ágæti þriðjudagur ber í skauti sínu en að minnsta kosti fer maður í blak kl. fimm. Góðar stundir
20 september 2004
Í verkfalli
Þá er skollið á verkfall hjá minni stafsstétt. Mér finnst ég vera í nokkru tómarúmi og fyrstu tímarnir fara í að velta framhaldinu fyrir sér. Mér datt í hug að rétt væri að blogga daglega meðan á verkfallinu stendur því satt best að segja man ég sáralítið eftir því sem gerðist í síðasta verkfalli, það gæti því komið sér vel að hafa skráð eitthvað hjá sér. Á meðan ég pára þessi orð hlusta ég á Geirmund ,,skagfirðing" Valtýsson syngja sína ágætu slagara og það léttir lundina ágætlega. Í gærkvöldi hélt ég mér vakandi við að bíða eftir 12 fréttum og þar fékkst staðfesting á að ekkert samkomulag hefði náðst. Í morgun komu svo forystumennirnir í útvarpið og skýrðu frá stöðunni. Eftir allt strögglið ber enn mikið á milli og manni virðist að aðilar séu í raun ekki að tala sama tungumálið - ekkert er reynt að nálgast kjarna málsins, þ.e. að einhvers staðar verði menn að mætast til að nýr samningur náist. Yfirlýsingar fulltrúa sveitarstjórnanna finnst mér vera út í hött: Síðasti samningur var gerður til að leiðrétta kjör kennara! Launin hækkuðu um 40% (Vilhjálmur V) en í Morgunblaðinu í dag kemur fram að heildarlaun kennara hafi hækkað um 20% síðan 2001 - það er aallt og sumt á meðan verðbólga hefur hækkað nærri jafn mikið! Meðan ástandið er svona þá má búst við að verkfall standi í langan tíma.
En þá leiðir maður hugann að því hvað gera skuli í verkfallinu. Listinn yfir allt sem þarf að gera hér heima er langur: mála þetta og hitt, gera við eitt og annað o.fl. Byrja að undirbúa jólablað Faxa fyrr en ella o.sv.frv. En hvað sem öðru líður þá ætla ég að fara á Hafnargötu 88 þar sem kennarafélagið okkar hefur fengið aðstöðu meðan á verkfallinu stendur. Það verður gott að hittast og bera saman bækurnar. (Kannski skreppur meður líka í golf, hver veit!).
Læt þetta duga í bili.
HH
En þá leiðir maður hugann að því hvað gera skuli í verkfallinu. Listinn yfir allt sem þarf að gera hér heima er langur: mála þetta og hitt, gera við eitt og annað o.fl. Byrja að undirbúa jólablað Faxa fyrr en ella o.sv.frv. En hvað sem öðru líður þá ætla ég að fara á Hafnargötu 88 þar sem kennarafélagið okkar hefur fengið aðstöðu meðan á verkfallinu stendur. Það verður gott að hittast og bera saman bækurnar. (Kannski skreppur meður líka í golf, hver veit!).
Læt þetta duga í bili.
HH
29 ágúst 2004
14 júlí 2004
30 júní 2004
12 júní 2004
05 júní 2004
03 júní 2004
28 maí 2004
10 maí 2004
06 maí 2004
Skemmtileg afmæli
Síðustu dagar hafa verið mjög skemmtilegir. Um síðustu helgi dvöldum við Brynja að Flúðum í sumarbústað KÍ og var það mjög notalegt þrátt fyrir nokkurn kulda. Potturinn er alltaf jafn góður. Við fórum snemma af stað á sunnudeginum, ókum fyrst að Geysi og síðan sem leið lá á Laugarvatn. Okkur finnst alltaf jafn gaman að skoða hjólhýsabyggðina þar, hún á ekki sinn líka á Íslandi. Síðan var það ís í Eden. Við komum svo í afmælisboð til Helgu á Granaskjólinu en hún átti 12 ára afmæli daginn eftir. Á þriðjudeginum var það síðan afmæliskaffi hjá Hrund en hún átti 29 ára afmæli þann dag. Það er ekki ofsagt að þessar gagnkvæmu afmælisveislur innan fjölskyldunnar eru hinar skemmtilegustu og tryggja það að fjöldkyldan missir aldrei taktinn og menn fylgjast vel með því sem er á döfinni hjá hver öðrum. Afmælisveislur lengi lifi. Í kvöld er okkur Brynju síðan boðið í Stapann að heilsa upp á Kristján Gunnarsson Faxafélaga og konu hans Guðrúnu.
Bless í bili.
Bless í bili.
18 apríl 2004
16 apríl 2004
Brynja ráðin skólastjóri
Í gær samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að ráða Brynju í stöðu skólastjóra Myllubakkaskóla frá og með 1. ágúst n.k. Fær hún hér með bestu árnaðaróskir með stöðuna og framtíðina.
Helgi
Helgi
Hrannar Hólm á afmæli á morgun
Það er ótrúlegra en hægt er að koma í orð að Hrannar Hólm verður fjögurra tuga ára gamall á morgun! Það var eins og í gær að ég rölti niður á sjúkrahús í Keflavík með mömmu hans uppúr kl. ellefu kvöldið áður því hún var farin að finna fyrir einhverjum verkum. Nú jæja eins og sönnum verðandi föður sæmdi á þeim tímum þá labbaði ég mér upp á Suðurgötu til tengdó og lagði mig þar. Um miðja nótt var svo hringt og tilkynnt um að frumburðurinn væri fæddur. Mikið var það nú ánægjuleg stund að sjá þau mæðginin eftir átök þeirra þá um nóttina - han bar jú þess greinileg merki í framan. Nú til að gera langa sögu stutta þá var hann vatni ausinn um þrem vikum síðar á Landakostsspítala og skírður Hrannar. Ég ætla að láta fylgja hér með mynd sem tekin var í Þrastarskógi nokkrum árum seinna en það er ekki ólíklegt að einhverjir sjái þar svip með þeim feðgum Hrannari og Helga Benedikt? Til hamingju með afmælið kæri Hrannar.
14 apríl 2004
26 mars 2004
Helena Brynja fer á leik í NBA
Í dag fer Helena Bynja með pabba sínum til Boston en þar munu þau fara að horfa á leik Boston og Philadelphia 76. HBH fær þá að sjá sitt idon=Iverson. Þessi ferð var fermingargjöf forledra hennar og þið getið rétt ímyndað ykkur tilhlökkun hennar. Annars var ferming hennar mjög ánægjuleg (sjá myndir) Við hér heima munum aftur á móti fara í kvöld á leik Keflavíkur og Grindavíkur en sá leikur fer fram í Grindavík og er sá þriðji í röðinni. Í gærkvöldi náði Snæfell því að slá Njarðvík út í undanúrslitunum og gerðu hið ómögulega að vinna upp 25 stiga forskot á 5 mínútum! Nú er farið að síga á seinni hlutann í náminu mínu, fyrsti kúrsinn að baki og þar sem páskar eru á næstu grösum þá er maður bara léttur þessa dagana. Á sunnudaginn förum við Brynja í fermingarveislu á Þingvöllum en sonur Siggu Magg verður fermdur þann daginn.
Sendi síðan góðar kveðjur til Hilmu sem í dag leggur af stað í langan bíltúr frá Houston til Iowa. Vona að allt gangi vel hjá henni.
Á sunnudag fer Brynja í viðtal í sambandi við skólastjórastöðuna í Myllubakkaskóla. Það þarf víst ekki að taka það fram að ég tel hana best fallna til að gegna þeirri stöðu. Vona að það gangi vel hjá henni.
Helgi
Sendi síðan góðar kveðjur til Hilmu sem í dag leggur af stað í langan bíltúr frá Houston til Iowa. Vona að allt gangi vel hjá henni.
Á sunnudag fer Brynja í viðtal í sambandi við skólastjórastöðuna í Myllubakkaskóla. Það þarf víst ekki að taka það fram að ég tel hana best fallna til að gegna þeirri stöðu. Vona að það gangi vel hjá henni.
Helgi
18 mars 2004
08 mars 2004
Gott hjá Heiðari Davíð
Heiðar Davíð Bragason varð í dag sigurvegari á Opna spænska meistaramótinu fyrir áhugamenn árið 2004 en hann sigraði í 36 holu úrslitaleik. Þetta er glæsilegur árangur og einn sá áhugaverðasti sem íslenskur kylfingur hefur unnið. Hann tryggði sér með sigrinu þátttökurétt í Opna spænska atvinnumannamótinu sem verður hadlið í lok mánaðarins. Til hamingju Heiðar.
Aðalviðburður helgarinnar var hér í Keflavík Samkaupsmótið í körfu. 720 ungir körfuknattleiks menn á aldrinum 5 - 12 ára voru skráðir til leiks og mættu 719! Alls tóku 101 lið þátt í mótinu hvaðanæva af landinu. Hér ríkti sannur íþróttaandi, að vera með skipti mestu máli enda voru engin stig skráð og engin úrslit. Auk þess að spila körfubolta gerðu þátttakendur sér margt til skemmtunar. Mótið þótti takast vel í alla staði en það fór fram í íþróttamiðstöðunum í Keflavík og Njarðvík en félögin standa sameiginlega að mótinu.
Af hálfu fjölskyldunnar tóku þeir þátt, Hugi (KR) og Helgi Benni (Keflavík) og stóðu þeir sig með miklum ágætum. Á
heimasíðu minni má sjá myndir frá mótinu.
Læt þetta nægja að sinni.
03 mars 2004
02 mars 2004
13 febrúar 2004
Og lífið gengur sinn vanagang
Nú hef ég ekki bloggað í eina tólf daga og mætti þá e.t.v. halda að ekkert hafi verið að gerast. Það er nú samt ekki málið heldur dettur maður úr þessum bloggfarvegi ef maður lætur of langan tíma líða milli blogga! S.l. laugardag sá ég Keflavík vinna tvöfalt í bikarkeppninni og var það verulega skemmtilegt. Ég horfði á kvennaleikinn í sjónvarpinu í beinni útsendingu, þ.e. ég hljóp öðru hvoru að tækinu og fylgdist með en annars var ég að hjálpa Hlín að slípa paraket í herbergi Huga. Það var ansi gaman, hef reyndar aldrei gert slíkt áður. (Ég ætla að reyna að setja mynd af því hér seinna í dag). Með þessum tvöfalda sigri er Keflavík komið langt fram úr öðrum liðum hvað tvöfalda sigra í bikakeppni áhrærir. Síðustu dag hef ég verið í forfallakennslu í Vogunum og er það ágæt tilbreyting en verð þó að passa mig að dragast ekki afturúr í lestrinum. Þarf að skila stórri ritgerð í félagsfræðinni fyrir næsta þriðjudag. Hún fjallar um breytingar á fjölskyldumunstri undanfaran áratugi og svo skemmtilega vildi til að það þema var einmitt til umræðu á Faxafundi í gærkvöldi og þar fékk ég nokkrar góðar hugmyndir. Kalli og Friðbjörn eru nú að spila golf í Florida og Siggi í Tailandi. Á ég ekki von á öðru en að það gangi vel. Stofan þeirra Hrundar og Gísla fer vel af stað og Brynja hefur nóg að gera bæði í vinnunni og svo er hún núna komin í stjórnunarnám við Endurmenntunarstofnun HÍ. Það er ekki að spyrja að kraftinum á þeim bæ. Öll barnabörnin (nema Skúli) eru á fullu við að æfa íþróttir og er gaman að því. Hlynur æfir karate, Hugi, Helena Brynja og Helgi Benni æfa körfu og Helga æfir fótbolta. Þeim eldri gengur líka vel í skólanum.
Hilma var í viðtali í Mayoklinikkinni nú í vikunni og gekk það vel. Fæ að heyra alla söguna síðar í dag og hlakka mikið til. Kveð að sinni.
HH
Hilma var í viðtali í Mayoklinikkinni nú í vikunni og gekk það vel. Fæ að heyra alla söguna síðar í dag og hlakka mikið til. Kveð að sinni.
HH
31 janúar 2004
Dýralæknastofa Suðurnesja opnar
Í dag opnuðu Hrund og Gísli stofuna sína að Hringbraaut 92a í Keflavík. Það var að venju verið að vinna við undirbúning fram undir opnun og kl. 13:55 tókst að koma upp gardínum. Hlín og Brynja sáu um glæsilegan undirbúning svo hægt væri að bjóða gestum einhverja hressingu. Hrund og Gísli voru á vinnufundi á Þingvöllum með samstarfsfólki sínu og renndu í hlað rétt um hálf tvö. Opnunin tókst mjög vel og strax klukkan tvö streymdu gestir að, tvífættir sem fjörfættir. Á tíma bili voru um 30 manns og 10 hundar og tveir kettir á staðnum. Allir luku upp einu orði um ágæti húsnæðisins og fengu eigendurnir margar góðar gjafir og hamingjuóskir með opnunina. Allt fram til klukkan sex var fólk að koma til að skoða og heilsa upp á dýralæknana og er öruggt að segja að þau hafi verið ánægð með daginn. Um kvöldið buðu Hrund, Gísli og Hákon okkur út að borða á SoHo og áttum við ánægjulega stund þar saman. Til hamingju Hrund og Gísli.
Helgi og Brynja
Helgi og Brynja
26 janúar 2004
21 janúar 2004
18 janúar 2004
14 janúar 2004
02 janúar 2004
Gleðilegt nýtt ár
Ágæta Elsa Lára
Sendi þér og þínum bestu nýjársóskir. Takk fyrir samstarfið á haustönninni. Sjáumst í staðlotunni.
Helgi Hólm
Sendi þér og þínum bestu nýjársóskir. Takk fyrir samstarfið á haustönninni. Sjáumst í staðlotunni.
Helgi Hólm
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)