27 desember 2003
Heimasíða Helga Hólm
Þá er runninn upp þriðji í jólum og helstu hátíðisdagar jólanna liðnir. Á aðfangasag vorum við Brynja í mat hjá Hrannari og Höllu og vorum þar í góðu yfirlæti fram að miðnætti en þá voru Hrund og Gísli líka búin að líta við. Góðar gjafir hlutum við og erum þakklát fyrir þær. Á jóladag var hinn hefðbundni fjölskyldufagnaður hjá okkur og að þessu sinni voru 17 manns mættir, aðeins Hilma var fjarverandi og Halldór og Hákon höfðu bæst í hópinn. Dagurin leið við hangikjötsát og leiki og skemmtu allir sér mjög vel. Við sendum öllum sem lesa þessi orð bestu jólakveðjur.
17 desember 2003
15 desember 2003
Heimasíða Helga Hólm
Heimasíða Helga Hólm
Undanfarna daga hef ég verið að hamast við að safna jólakveðjum í blaðið Faxa en það ágæta blað hefur nú komið út óslitið í 63 ár. Ég var ritstjóri í 15 ár en Guðni Kærbo er tekinn við því ágæta embætti. Aftur á móti er ég nú titlaður auglýsingastjóri. Það er Málfundafélagið Faxi sem gefur út blaðið en það félag var stofnað árið 1939. Fyrst voru félagar þess sex en þeim fjölgaði fljótt í tólf og sá fjöldi hefir haldist fram á þennan dag. Faxi kemur nú út fjórum sinnum á ári og er honum dreift hér syðra í 4500 eintökum. Aðaltilgangurinn með útgáfunni er að fjalla um daglegt líf á þann hátt að það geti skapað heimildir til síðari tíma litið. Það hefur gengið þokkalega að safna kveðjum því það eru margir sem hafa það fyrir fasta venju að senda Suðurnesjafólki kveðju í Faxa. Blaðinu verður dreift þann 18. des. n.k.

12 desember 2003
Heimasíða Helga Hólm
Heimasíða Helga Hólm
Heimsókn á Kirkjuveginn - Ég, Hugi og Helga mættum í pizzuveislu á Kirkjuveginn skömmu eftir komuna þangað. Hlín var að koma frá Brussel og sótti Brynja hana upp á völl. Helgi sá um að panta pizzurnar og nú eru allir í rólegheitunum hér. Kveðja, Bjössi

06 desember 2003
Heimasíða Helga Hólm
Heimasíða Helga Hólm
Jæja það gekk nú aldeilis vel að fara með hestana úr Kjósinni austur í Fljótshlíð. Meira um það síðar.

02 desember 2003
Hestarnir í Fljótshlíðina
Heimas��a Helga H�
Næstkomandi laugardag stendur til að fara með Gísla og Bjössa í Fljótshlíðina með hrossin þeirra Gísla og Hrundar og fl. Það verður ábyggilega gaman og a.m.k. þykir mér vænt um að fá að heilsa upp á þau Árna og Jónínu að Teigi. Vona bara að veðrið skáni.

29 nóvember 2003
27 nóvember 2003
Enn eitt verkefnið að baki
Ósköp er það nú góð tilfinning sem grípur mann þegar maður ýtir á send-takkann og enn eitt verkefnið fer frá manni og það er orðið of seint að breyta nokkru. Var að klára lokaverkefnið í íslensku/hagnýt málvísindi. Ég nýtti mér nú það sem ég er búinn að vera að læra í upplýsingatækni og skólastarfi og setti verkefnið einnig upp á skilasíðunni minni. Kíkið endilega á það. Í gærkvöldi fórum við flest sem erum hér heima í fjölskyldunni (ekki Hrund og Gísli) að fylgjast með leik Keflavík og Madeira í körfu. Hörkuskemmtilegur leikur og þar að auki skemmtileg fjölskyldusammenkomst. Sjá myndir á heimasíðunni. Annars er kominn í mann örlítil jólatilfinning því víða er búið að tendra ljós og setja upp skraut.
Ég vil svo að lokum senda góðar kveðjur til Houston!

25 nóvember 2003
21 nóvember 2003
20 nóvember 2003
14 nóvember 2003
10 nóvember 2003
Kominn heim
Jæja. Þá er maður kominn heim á klakann og ekki er annað hægt að segja að það hafi verið vel tekið á móti manni. Öll fjölskyldan safnaðist saman í morgunmat hjá Hrund og Gísla og svo voru barnabörnin viðloðandi meira og minna um helgina. Mjög gaman. Nú er bara að detta út úr daglegum venjum í Houston og hverfa á ný í daglegar venjur í Keflavík. Ég sakna strax guttanna í Houston en þeir koma heim um jólin svo það er ekki svo langt þangað til. Ég vil þakka Houstonbúum fyrir góðar mótttökur og þægilega dvöl og vonast til að maður geti skotist þangað aftur í framtíðinni.
En þá er að snúa sér aftur að náminu og búa sig undir að taka á á lokasprettinum fram að jólum. Þetta er búið að vera ljómandi skemmtilegt og fróðlegt. En ekki má gleyma því að það er blakæfing á morgun kl. fimm hjá Steinunni gömlu! Fór í gær að sjá Keflavík keppa við Hamar í körfunni. Ekki var mótstaðan mikið hjá Hamarsmönnum og lék varalið Keflavíkur mest allan leikinn. Leikurinn varð því aldrei mjög skemmtilegur en ungu strákarnir fengu þó ágæta æfingu.

03 nóvember 2003
Fjölskyldufundur í Houston
Í gær, sunnudaginn 2. nóvember, hitti ég, Hima, Hlynur og Skuli, helling af nýjum frændum og frænkum. Við fórum í heimsókn til Lóu Halldórsdóttur Fay og mannsins hennar William Fay og þá voru þar einnig Conny og Hans systkini Lóu og nokkir úr fjölskyldum þeirra. Eins og ég hef áður sagt hér í dagbókinni þá eru þetta börn bróður mömmu en hann flutti til Kaupmannahafnar upp úr 1930 og gerðist þar bakari. Þetta voru sannarlega fagnaðarfundir og margt að spjalla um. Sjá myndir á heimasíðu minni.
01 nóvember 2003
Halloween í Houston
Jæja þá er maður búinn að upplifa alvöru Halloween stemmingu í Bandaríkjunum. Það hófst með uppákomu í skólanum hans Skúla þar sem litlu krílin voru flest komin í búninga af hinum ýmsu gerðum. Skúli mætti til leiks sem Bangsimon og var algjört krútt.
Síðar um daginn var svo partý í götunni hjá einum nágrannahjónunum. Það var mjög gaman og mættu flest börnin í skemmtilegum búningum og Hlynur var þá einnig kominn í sinn búning sem japanskur ninjabardagamaður.
Þar var pizza borin fram og drykkir með. Síðan tók við Trick´n Treat hjá börnunum sem fóru hús úr húsi, þó reyndar í fylgd með fullorðnum. Alls staðar var tekið vel á móti þeim og voru sum þeirra búin að safna drjúgt í pokann sinn áður en yfir lauk. Fólk notaði tækifærið í góða veðrinu og sat í hópum framan við hús sín og tók á móti gestum og gangandi. Allt fór þetta vel fram og var hin skemmtilegasta uppákoma. Við Hilma litum aðeins í bæinn um kvöldið og þá var það fullorðna fólkið sem hafði klætt sig í búninga og sums staðar sá maður þemu í gangi. Sáum við t.d. stóran hóp Tongaklæddan! Fleiri Halloween myndir er að finna á heimasíðunni minni undir Halloween.

30 október 2003
Fjölskyldumeðlimir í Houston Texas
Jæja þar kom að því. Í dag hitti ég Conny (Halldórsdóttir) Raevmann og dóttir hennar Lóu sem átti 15 ára afmæli s.l. sunnudag. Þetta voru fagnaðarfundir því það eru um 30 ár frá því við Conny hittumst síðast. Við vorum alveg sammála um að við hefðum ekkert breyst! Conny býr í bæjarhluta í Houston sem heitir Bellville en þar sem hún átti erindi í IKEA í dag þá var ákveðið að hittast þar. Læt fylgja með mynd af ágætu húsi verslunarinnar og yfirlýsingu um að það eigi að stækka verslunina tvöfalt á næsta ári. Þeir hljóta að vera að gera það gott í Houston. En áfram með smjörið. Við settumst niður, fengum okkur kaffi og byrjuðum að spjalla og áður en við vissum var liðinn klukkutími! Erindi þeirra í IKEA var að kaupa húsgöng í herbergi Lóu en þau eru nýbúin að byggja sér nýtt hús og þá þarf auðvitað eitthvað af húsgögnum.
Ég notaði tækifærið og spurði Conny spjörunum úr um fjölskyldu hennar og fylgir hér nú stutt útgáfa að þeirri frásögn en svo merkilega vill til að systkinin búa nú öll í Houston.
Halldór (fæddur 1913) og Ólafur (fæddur 1915) voru bræður mömmu (Sigurlaug fædd 1908) og Rögnu (fædd 1907). Þeir höfðu báðir lært til bakara og um tvítugt fór Halldór, eða Halli eins og hann var kallaður, til Kaupmannahafnar og fór að vinna við iðn sína. Þar kynntist hann Ane Margrete og þau hófu sambúð. Nokkrum árum síðar fóru þau til Íslands og voru þar í einhvern tíma en fóru síðan aftur til Danmerkur. Í það skiptið fór Ólafur með og fór hann einnig að vinna sem bakari. Er ekki að orðlengja það að þeir eignuðust báðir sitt eigið bakarí og störfuðu við það fram á eldri ár. Halldór og Ana giftust og árið 1942 fæddist þeim sonur, Halldór Tonni. Halldór og Ana skildu og Halldór kvændist Agnethe. Þau eignuðust þrjú börn: Hans, fæddur 1942, Conny, fædd 1953 og Lóa, fædd 1958.
Ana og Tonni dvöldust á Íslandi á árunum 1946-1954 en fluttu þá aftur til Kaupmannahafnar þar sem Tonni fylgdi í fótspor föðurs síns og lærði til bakara. Rúmlega tvítugur að aldri tók hann sig upp og flutti hingað til Houston og fór að vinna við iðn sína þar. Síðar gegndi hann ábyrgðarstörfum hjá Randalls sem voru nokkrum sinnum kjörin bestu bakarí í Bandaríkjunum og átti Tonni stóran hluta í þeim heiðri. Hann fór á eftirlaun fyrir nokkrum árum og eyðir nú gjarna tíma sínum í ferðalög vítt og breitt um heiminn. Tonni og kona hans, Kirsten, eiga tvö börn.
Hans, bróðir Tonni, var einnig bakari og nokkru síðar en Tonni flutti hann einnig til Houston og starfar þar fyrir "Best Brand" við að selja bökunarvörur til bakaría og er hann með sína skrifstofu heima hjá sér. Kona hans er Elisabeth og er hún ættuð frá kanada.
Conny kom fyrst til Houston árið 1989 og var hér í eitt ár. Meðal þess sem hún gerði var að kenna bakstur við Houston Community College. Conny kom síðan aftur til Houston 1997 og þá var hún var þá gift seinni manni sínum Raevmann en þau eru nú skilin. Fyrri maður Connyar var Sigurjón Kristjánsson en hann var m.a. Íslandsmeistari í júdó og starfaði við júdóþjálfun í Danmörku. Conny var þá mjög áberandi í júdó og var í mörg ár Danmorkumeistari. Þau Sigurjón eignuðust þrjár dætur, Halldóru Jórunni (24), Dönu Ýr (20) og Lóu Hrönn (15). Conny starfar hjá tryggingafyrirtæki. Lóa sem á árunum kringum 1980 var besta 10 km hlaupakona veraldar starfaði lengstum hjá ISS öryggisfyrirtækinu í Kaupmannahöfn og gengdi þar mörgum ábyrgðarstörfum en flutti til Houston til að starfa hjá fyrirtækinu. Einnig var hún nokkur ár í New York en kom aftur til Houston og starfar þar enn að öryggismálum. Hennar maður er William McNeese og eiga þau tvö börn, James Halldor (Hal) sem verður 6 ára í nóvember og Tonni Elisabet (Beth) sem varð 2ja ára í apríl s.l.
Af Ólafi er það helst að segja að hann og kona hans, Gudrun, eignuðust þrjá syni, Sigurð, fæddur 1941, Erik, fæddur 1943 og Ole sem fæddist 1947. Sigurður og Ole lærðu til bakara en Erik lærði hjólasmíði. Erik sem er látinn eignaðist tvær dætur, Sigurður eignaðist þrjú börn og Ole eitt.
N.k. sunnudag er ráðgert að við Hilma, Hlynur og Skúli förum og hittum allar fjölskyldurnar og hlökkum við mikið til þess. Ekki skemmir að börn Lóu eru á svipuðum aldri og strákarnir. Sjá myndir á heimasíðunni. Meira síðar.

24 október 2003
Síðan síðast
Ég hef alveg gleymt mér þessa vikuna en það er ekki þar með sagt að fátt hafi gerst. Það skemmtilegast sem gerðist í vikunni var að dóttir mín, Hrund, og hennar maður, Gísli, og kettirnir Kútur og Snúður fluttu til Keflavíkur og það verður því það fyrsta sem ég geri þegar ég flýg heim þann 7. nóvember er að fara í morgunkaffi að Gígjuvöllum 3. Gísli er allavega búinn að lofa því að það verði heitt á könnunni.
Ég hef síðustu daga verið að púla við að ljúka við verkefni í námskeiðinu Heilsuefling og er nú að nálgast endalokin þar. Tók mér þó smáfrí og skrapp á æfingasvæðið við Hermann golfvöllinn. Fékk mér eina fötu og dúndraði boltum út og suður af miklum krafti og með lítilli fegurð. Þegar ég var svo búinn með alla boltana þá kom til mín starfsmaður, Mark, að nafni og fór að spjalla við mig, spurði m.a. hvort ég ætlaði ekki að leika völlinn. Til þess hafði ég nú ekki tíma en þá spurði hann mig hvort ég væri að æfa eitthvað sérstakt. Ég sagði það vera - væri að reyna að taka kylfuna beint aftur án þess að hún færi í alls konar hlykkjum og kæmi svo öll skökk í boltann í niðursveiflunni! (þið skiljið - ekki satt?) Hvað um það þá fór hann með mig til fullorðins kennara sem var að kenna á öðrum stað á vellinum og sagði mér að einmitt þessi maður væri sérfræðingur í þessu vandamáli. Sá gamli heitir Ben og hafði verið á atvinnumannatúrnum fyrir 25 árum. Ég fékk svo hjá honum nokkra punkta og sló npkkra bolta. Þetta var mjög áhugavert og ég mun fara aftur á morgun og æfa þetta sérstaklega. Hvort það skilar árangir kemur svo í ljós á sunnudag þegar við förum aftur á draumavöllinn í kingwood.
Læt þetta nægja í bili.

20 október 2003
Ágæt helgi að baki
Tíminn frá föstudagskvöldi til sunnudagskvölds er oft ótrúlega fljótur að líða enda er það viðkvæði hjá okkur Brynju þegar líða tekur á sunnudaginn að segja:„Er ekki örugglega annar sunnudagur á morgun." Þó það hafi ekki enn gerst þá finnst okkur þetta skemmtilegur orðaleikur og það bendir til þess að það hafi verið nóg að gera þó þetta hafi átt að vera hvíldardagur. Ég held reyndar að Brynja hafi ekki vitað hvað hvíldardagur er þennan tíma sem ég hef verið í burtu en það er jú önnur saga. Við Hilma fórum á föstudagskvöldið að sjá kvikmyndina Runaway Jury sem gerð er eftir sögu John Grisham með sama nafni. Það var allþéttur hópur góðra leikara sem hélt uppi spennunni: Gene Hackman, Dustin Hofnman, John Cusack, Rachel Weisz svo nokkrir séu nefndir. Sagan er að mestu um réttarhöld og óvænt plott kringum þau. Við mælum með myndinni. Ég veit ekki hvort ég á nokkuð að vera að fara yfir gærdaginn því þá gæti fólk haldið að ég væri bara að leika mér hér úti. Jæja, hvað um það. við Haukur fórum með tveimur kunningjum hans í Kingwood golfklúbbinn og lékum á Island Cource. Þetta var ofsalega gaman en skorið verður meðhöndlað eins og ríkisleyndarmál enda var þetta einn erfiðasti golfvöllur sem ég hef spilað á um æfina en jafnframt var hann mjög fallegur. Í dag var ég svo að flakka um með strákana og ætlaði svo að ljúka við vekefni í kvöld í setningafræði en þá kom sú yndislega tilkynning að skilafrestur hefði verið færður til 3. nóv. Mér varð svo mikið um þetta að ég horfði bæði á Alias og The Lions Den í kvöld.
Læt þetta duga að sinni.
Læt þetta duga að sinni.
17 október 2003
Stutt námskeið í FrontPage
Ég gerði í vor verkefni í heimssíðugerð með FronPage og var með stutt námskeið fyrir 10. bekk og nokkra kennara í skólanum mínum. Í dag hef ég verið að vinna við þetta verkefni og er meiningin að setja það inn á skilasíðuna mína hjá Salvör (Upplýsingatækni og skólastarf). Fyrst vildi ég gjarna bjóða fólki að prófa að vinna þetta verkefni og láta mig svo vita hvort það eru einhverjir „böggar" í því. Það má líta á þetta evrkefni sem n.k. open source verkefni. Komið fólk! Látið hendur standa fram úr ermum og hjálpið mér. Slóðin er hér. Heyri svo frá ykkur á helgiholm@mmedia.is
14 október 2003
Umræður um OPEN SOURCE
Það er búið að vera mjög skemmtilegt að lesa sér til um fyrirbærið open source á internetinu og þá hugsun sem að baki því liggur. Fjölmargir aðilar vítt og breitt um heiminn eru að vinna að því að forma þessa ný-hugsun sem felst í open source.
Open source: að setja upp hugbúnað og ýmis konar efni á internetinu þannig að það sé öllum aðgengilegt. Þótt ýmis forrit hafi á undanförnum árum verið ókeypis þá hefur það a.m.l. byggst á því að verið er að kynna forritin með það í huga að notandinn kaupi það síðar í fullkomnari útgáfu.
Open source hentar mjög fyrir þá sem vinna að skólastarfi eða við hvers konar önnur menntunarstörf eða þá opinbera aðila sem veita almenningi upplýsingar á fjölmörgum sviðum. Að undanförnu hefur þessi hugmynd verið að þróast í tónlistarheiminum þar sem fólk hefur verið að skiptast á tónlist. Þetta hefur kostað árekstra við þá sem framleiða tónlist og er ekki gott að segja hvernig það endar.
Spurning snýst fyrst og fremst um það hvort sá sem framleiðir eittvher (þekkingar) efni er tilbúinn að láta aðra nýta sér það án endurgjalds, eða a.m.k. fyrir mjög lítið endurgjald. Það getur að sjálfsögðu kostað eitthvað að sjá um að koma efninu fyrir á aðgengilegan mátaþ
Þeir sem búið hafa til eða búa yfir efni sem hentar á þessu sviði þurfa að tileinka sér þá tækni sem notast má við. Nú þegar er að finna á internetinu ýmsa möguleika sem í raun krefjast ekki mikillar kunnáttu og færni á þessu sviði, s.s. bloggið. Open source spjall forrit og svo býður auðvitað internetið sjálft og uppbygging þess (með hinum fullkomnu leitarvélum m.a.) upp á möguleika á dreifingu open cource efni.
Þótt margt sé að finna á internetinu um hvað eina sem okkur langar til að vita þá er margt af því á skjölum sem innihalda margs konar aðra vitneskju og því getur verið erfitt að finna það sem við vildum finna þá stundina. Hugmyndin hjá open source fólki er að einfalda leitina og framsetninguna með því að hver þekkingar- og eða vitneskjuhugmynd verði vistuð sérstaklega. Þar með væri auðvelt að uppfæra hana þegar ástæða væri til en það er aftur á móti erfiðara þegar þessi sérstaki þáttur er hluti af stærra skjali sem gefið er út einu sinni og síðan ekki breytt eftir það.
Stýriforritið Linlux er gott dæmi um open source forrit. Höfundar þess sendu það út á netið og óskuðu eftir aðstoð við að fullhanna forritið. Í stað þess að aðeins forritarar fyrirtækisins væru að vinna við hönnunina of prófanir þá urðu þeir margfalt fjölmennari og vinnan tók margfalt skemmri tíma.
Ég læt svo fylgja hér með nokkur orð á ensku en þau fékk ég á heimasíðu frá Kóreu þar sem menn eru að vinna að þessum málum á fullu:
„The basic idea behind open source is very simple: When programmers can read, redistribute, and modify the source code for a piece of software, the software evolves. People improve it, people adapt it, people fix bugs. And this can happen at a speed that, if one is used to the slow pace of conventional software development, seems astonishing.
We in the open source community have learned that this rapid evolutionary process produces better software than the traditional closed model, in which only a very few programmers can see the source and everybody else must blindly use an opaque block of bits.
Open Source Initiative exists to make this case to the commercial world.
Open source software is an idea whose time has finally come. For twenty years it has been building momentum in the technical cultures that built the Internet and the World Wide Web. Now it's breaking out into the commercial world, and that's changing all the rules”
Skoðið einnig þessa síðu um DELORN þar sem menn eru að velta fyrir sér sameiginlegri vistun á open source þekkingarefni.
Hér er svo dæmi um kennsluvef í open source sem Salvör benti á:

13 október 2003
Halloween
Í lok október halda menn upp á Halloween hér í Bandaríkjunum og það er meiriháttar hátíð. Nú er þegar farið að sjást margvíslegar skreytingar við hús hér í nágrenninu og verslanir auglýsa útbúnað hver í kapp við aðra. En hvaða skapnaður er þetta? Jú þetta er hátíð sem á rætur sína að rekja aftur fyrir kristni m.a. á Englandi og Írlandi. Á þeim tíma var árinu skipt í fjóra parta og byrjaði nýtt ár þann 1. nóv. Þá var vetur að ganga í garð. En einnig var þá uppskeruhátíð dauðans. Ég læt fylgja hér með hlekk inn á heimasíðu sem fjallar ágætlega um þessa hefð. Í hverfinu okkar á að halda mikla pizzuhátíð áður en börnin fara í alls kyns búningum sem álfar, tröll, Frankenstein o.fl. til að banka upp á hjá nágrönnunum og heimta fórnir í formi sægætil. Ég er strax farinn að hlakka til.
Búinn að finna ættingjana
Vildi bara láta vita að ég er kominn í samband við ættingjana hérna í Houston. Conny sendi mér tölvupóst og ég reikna með að hitta þau fljótlega. Það verður um margt að spjalla og spyrja þegar úr því verður. Við fórum í dag á stóran matvörumarkað og aldrei hef ég séð jafn mikið úrval af ferskri matvöru. Grænmeti, ávextir, kjöt, fiskur - bara að nefna það. Annars hefur helgin liðið í rólegheitum, ekkert golf því ég fékk skessuskot í bakið, sennilega af of mikilli setu fyrir framan sjónvarpið við að horfa á golf! Ég ætla að passa mig á þeim fj. framvegis.
Nóg í bili.
Nóg í bili.
12 október 2003
Áhugaverður lestur
Eftir að hafa gluggað í lesefnið okkar í námskeiðinu Hagnýt málvísindi að undanförnu þá er það margt sem hefur vakið athygli mína. Í fyrsta lagi hversu snemma menn fóru að skrifa um málfræði og eignleika tungumála. Þar á ég við bæði hinar fyrstu málfræðiritgeðir Íslendinga sem og það sem aðrar þjóðir voru að skrifa fyrr á öldum. En þegar maður fer að hugsa um þessi mál þá ætti það svo sem ekki að koma manni á óvart.
Síðan er það hversu gömul þessi málhreinsunar- og nýyðrastefna sem við fylgjum er í raun og veru, eða allt frá seinni hluta 18. aldar. Útgáfustarfsemi Lærdómslistafélagsins hefur verið mjög umfangsmikil og síðan kom Ármann á Alþingi o.fl. Arfurinn sem þetta fólk skildi eftir sig er sá grundvöllur sem nútímaíslenska byggir á.
Að lokum hefur verið mjög skemmtilegt að lesa um þróun enskunnar því þar hafa orðið gríðarlegar breytingar gegnum tíðina. Áhugavert er að fræðast um öll þau tökuorð sem eru í enskunni og langar mig að nefna hér nokkur:
Úr frönsku:
goverment, nation, attorny, lechery, religion, crown, jury, saint, virgin, value
Úr latínu:
bonus, scientific, exit, describe
Úr norrænu:
they, their, them
Úr Celtic-tungumálum:
flannel, slogan, whisky,
Úr hollensku:
buoy, freight, leak, pump
Úr spænsku:
ranch, barbecue, cockroach, California,
Læt hér með þetta nægja en vill þó benda hér á áhugaverða heimasíðu um íslenskuna.
Heimildir: M.a. An Introduction to Language

11 október 2003
Ættingjar í Texas
Þegar það kom uppá að ég yrði um tíma í Houston þá kom upp í huga minn minning um að einn frændi minn hefði fyrir alllöngu flutt frá Kaupmannahöfn til Houston. Minnti mig að hann hefði sett þar upp bakarí. Ég setti því í gang nokkra leit að nánari upplýsingum og fékk Mjöll systur mína í lið með mér. Í dag fékk svo ég tölvupóst frá henni með þeim ánægjulegu upplýsingum að hvorki fleiri né færri en fjögur frændsystkin mín búa hér í næsta nágrenni við mig. Þau eru Conny, Lóa, Hans og Tonni Ólafsbörn. Þannig var mál með vexti að tveir bræður móðir minnar, Halldór og Ólafur Ólafssynir höfðu sem ungir menn flutt til Kaupmannahafnar og settu þeir þar báðir upp bakarí. Árið 1971 heimsóttum við Brynja þá báða og komum við í bakarí annars þeirra á Vesterbrogade í miðbæ Kaupmannahafnar.
Ég mun nú á næstu dögum reyna að setja mig í samband við þessa ættingja mína og verður gaman að sjá hvernig mér tekst upp í þeim tilraunum. Hlakka ég sérstaklega til að hitta þær systur Conny og Lóu. Conny var á sínum tíma Kaupmannahafnarmeistari í júdó og Lóa átti um tíma Norðurlandametið í 10 kílómetrahlaupi og hafði verið valin til að keppa á Olympíuleikunum í Moskvu 1980 en Danmörk eins og mörg fleiri ríki mættu ekki á þá leika. Einnig kom Lóa til Íslands og keppti þar.
Ég mun láta vita hér á blogginu hvað gerist frekar. Nú hlakka ég bara til að fara upp í rúm með góða bók sem ég er að lesa, fara síðan að sofa til að láta mig dreyma um að Ísland vinni Þýskaland á morgun. Sitja svo spenntur kl 10:00 til að hlusta á leikinn í beinni útsendingu.
Sæl að sinni

09 október 2003
Skoðun á næsta nágrenni
Ég tók mig til fyrir nokkrum dögum og fór í göngutúr um hverfið sem Hilma og co. búa í. Gatan heitir Addison Rd og þetta er nokkuð gróið hverfi í næsta nágrenni við Rice Universitiy. Hverfismiðbærinn heitir Rice Village. Ég hafði með mér myndavélina og tók myndir á leiðinni. Ég er búinn að setja þær upp á heimasíðunni minni en læt hér fylgja nokkrar með:
Það var gaman að finna þessa bókabúð. Er búinn að kaupa margar vasabrotsbækur á 50 cent!
Kíkið endilega á heimasíðuna undir. Í dag finnið þið þetta undir Nýjar myndir.

06 október 2003
Erfitt verkefni en viðburðarrík helgi
Mér tókst loksins í morgun að ljúka við og senda frá mér verkefni í Heilsueflingu, átti reyndar að senda það á föstudaginn en náði því ekki. Að skrifa um stöðu heilsbrigðismála í heiminum er ansi stór biti. Þetta verður sett upp á vefsíðuna mína þegar kennarinn er búinn að fara yfir þetta. Annars var þetta viðburðarrík helgi og þar sem ég vill ekki að fólk verði grænt af öfund þá ætla ég sama og ekkert að tala um þetta dásamlega veður sem er í Houston þessa dagana. Í gær fórum við á Greek Festival hér í bænum en grískir innflytjendur hafa haldið slíkt festival í 37 ár. Ég ætla að sýna ykkur eina mynd en vísa í heimasíðuna mína, þar eru fleiri myndir :
Í gærkvöld fórum við Hilma svo aftur á Sambuca Jazz og hlustuðum á Ezra Charles and the Works. Ezra leikur á píanó af miklum krafti og er þetta svoa boogie - woogie Texan Blues Jazz mundi ég segja. Með honum var síðan gítaristi, trommari og fjórir á blásturshljóðfærum, trompet, básúnu og saxafóna. Mjög hresst band og góð stemming og við hilma tókum nokkur góð tjúttspor með tilheyrandi sveiflum. Seinnipartinn fórum við Haukur svo í golf og spiluðum á Hermann Park. Skorið: HH 79 - HS 82. Ekki slæmt.

Skemmtileg sagnabók
Fyrir nokkrum dögum gekk ég niður i Rice Village sem er n.k. miðbær hér í hverfinu. Þar er að finna hina ágætustu bókabúð þar sem notuð bók kostar um 50 cent og margar ágætar bækur í bandi kosta nokkra dollara. Bókin heitir Chicken Soup for the Soul eftir Jack Canfield og Mark Victor Hansen. Útg. er Health Communication, Inc. Deerfield Beach, Florida. Bókin inniheldur 101 stuttar sögur og að sögn höfundanna er markmið þeirra að opna hjörtu lesendanna og endurvekja andann. Ég get alla vega samþykkt þetta fyrra því þegar ég las fyrstu sögurnar þá vatnaði ég músum eins og ég geri alltaf er ég horfi á hjartnæmar myndir, og ekki orð meira um það. Þetta fellur ágætlega saman við námskeiðið sem ég er á hjá Baldri Hafstað um Sagnir og sagnahefð. Þetta er sem sagt nútíma sagnahefð. Þetta eru allt sannar sögur sem hafa verið ritaðar upp eftir heimildarmönnum eða skráðar af þeim sem upplifðu þær. Ég ætla að skrifa hér upp eina fyrir lesendur mína, ég skrifa hana beint upp úr bókinni og því er hún á ensku. Vona að þið hafið ánægju af lestrinum.
Puppies for sale
A store owner was tacking að sign above his door thar read "Puppies For Sale." Signs like that have a way of attracting small children, and sure enough, a little boy appeared under the owner´s sign. "How much are you going to sell the puppies for?" he asked. The store owner replied, "Anywhere from $30 to $50."
The little boy reached in his pocket and pulled out some change. "I have $2,37," he said. "Can I please look at hem?"
The store owner smiled and whistled and out of the kennel came Lady, who ran down the aisle of his store followed by five teeny, tiny balls of fur. One puppy was lagging considerably behind. Immediatley the little boy singled out the lagging, limping puppy and said, "What´s wrong with that little dog?"
The store owner explained that the veterinarian had examnied the little puppy and had discovered it didn´t have a hip socket. It would always limp. It would always be lame. The little boy became excited. "That is the little puppy that I want to buy." The store owner said, "No, you don´t want to buy that little dog. If you really want him, I'll just give him to you."
The little boy got quite upset. He looked straight into the store owner´s eyes, pointing his finger, and said,"I don´t want you to give him to me. That little dog is worth every bit as much as all the other dogs and I´ll pay full price. In fact, I´ll give you "2,37 now, and 50 cents a month until I have him paid for."
The store owner contered, "You really don´t want to buy this little dog. He is never going to be able to run and jump and play with you like the other puppies."
To this, the little boy reached down and rolled up his pant leg to reveal a badly twisted, crippled left leg supported by a big metal brace. He looked up at the store owner and softly replied, "Well, I don´t run so well myself, and the little puppy will need someone who understands!"

01 október 2003
Golfæfing með Hlyni
Í gær fórum við Hlynur á æfingasvæðið á Herman Golf Course. Við byrjuðum á því að slá úr einni fötu en þegar Hlynur var búinn að slá ágætlega um það bil 10 boltum þá fór hann að pútta. Eftir smástund sá ég að ein kona sem var að æfa sig á púttflötinni leit upp með skelfingarsvip. Orsökin var sú að Hlynur var að pútta yfir endilanga flötina og hljóp svo á fullu á eftir boltanum. Ahemm... Þegar ég var búinn að slá alla boltana skoraði ég á Hlyn í púttkeppni og gaf ég honum högg á holu. Ég hefði ekki átt að gera það því ég náði aðeins að jafna við hann tvær holur og hann vnn allar hinar! Seigur strákurinn.
Vefleiðangur og tæknisaga
Í námskeiðinu Upplýsingatækni og skólastarf er næsta verkefni að semja vefleiðangur. Verkefnið sem ég hef valið mér nefnist Golfíþróttin á Suðurnesjum og felst það í því að nemendur eiga að kynna sér all náið sögu íþróttarinnar á Suðurnesjum en þar starfa í dag fjórir golfklúbbar. Þau vinna við verkefnið á ýmsan hátt, s.s.
- safna upplýsingum af fjölda vefsíða
- svara spurningum
- vinna í hópum við að gera a.m.k. 300 orða samantekt um einn af golfklúbbunum á Suðurnesjum
- gera stutta úttekt á öllum klúbbunum á Suðurnesjum
- týna saman myndir og búa til myndasíður, 2 A4 með 8 myndum í stærðinni 350 pixlar á breidd
- skila verkefninu á nokkrum A4 síðum m/ forsíðu (sjá dæmi um forsíðu hér)
Bekknum verður skipt í fjóra hópa og munu hóparnir draga um hvaða golfklúbb þeir fjalla um í hópverkefninu.
Nemendur fá einkunn fyrir frammistöðu sína og gildir einstaklingsvinnan 70% og hópvinnan 30%.
Tenglar verða inn á ýmsa vefi innlenda sem erlenda sem ættu að leiða þáttakendur að markinu. Hér eru dæmi um innihald nokkurra þessara vefja:
- Vefur golfsambandsins - upplýsingar um alla golfklúbba á landinu
- Stutt samantekt um íslensku golfsöguna
- Sagt er að þar eigi golfið heima
- Íslenska útgáfan af stærsta golfblaði heims
- Evrópskir atvinnumenn í golfi
- Og konurnar í Evrópu
- Bandarískir atvinnumenn í golfi
- Bandarískar atvinnukonur í golfi
- Frægasti karlgolfleikarinn
- Frægasti kvengolfleikarinn
Eitthvað fleira mun ég sjálfsagt tína til áður en yfir lýkur.
Tæknisögu mín er ég að leggja lokahönd á og má sjá drögin hér.

30 september 2003
Hádegisverður á indverskum veitingastað
Þar kom að því. Ég borðaði indverskan mat í í fyrsta skipti dag og það var bara mjög gott. Hilma bauð mér með sér í hádegisverð með teyminu hennar á Shiva Indian Restaurant. Þarna voru mætt Dr. Singh, sérfræðingurinn hennar, Rodrigo og Thomas, aðstoðarlæknarnir hennar, Michelle vinkona hennar sem er í sama prógrammi og Hilma, Kelly, Whitney og Wendy, sem allar eru læknanemar. Það var mjög létt yfir hópnum og lítillega rætt um Ísland og mat, en aðallega (að sjálfsögðu) um starfið á spítalanum. Var gaman að verða vitni að því hve hópurinn greinilega metur Hilmu mikils og hennar leiðtogahæfileika og kunnáttu. Já, maturinn! Mér fannst hann góður, dálítið sterkur þó. Þarna borðaði ég geitakjöt í fyrsta skipti og fannst mér það ekki ósvipað íslensku lambasmásteikinni. Nú veðráttan hérna úti er nú farin að líkjast Keflavík á góðum sumardegi, hitinn þetta rúmlega 20 gráður og skínandi sól og bærist varla hár á höfði.´
Látum þetta gott heita að sinni.
Látum þetta gott heita að sinni.
29 september 2003
Tívoli í Houston
Það er óhætt að segja að helgin hafi verið tekin með trompi því að í gær fórum við með vinkonu Hilmu og fl. í Astro World en þar er tívolí, vatnagarður og fl. Við létum okkur nægja „litlu" tækin í þetta sinn, s.s. vatnasleða og minnsta rússíbanann. Ég stóðst ekki mátið og brá mér í pool og vann tuskukrókódíl!
28 september 2003
Góður dagur í Kemah
Í dag fórum við Hilma með Skúla og Hlyn suður að Mexíkóflóa til smábæjar sem heitir Kemah. Það tekur um 50 mínútur að aka frá Houson jafnvel þótt umferð hafi verið mikil. Það sem er aðalaðdráttaraflið er The Broadwalk of Kemah en það sést mjög vel á heimasíðunni þaðan. Hitinn í dag var ágætur, svona rétt innan við 30 gráður. Þarna var mýgrútur af fólki enda margt þar til að dunda sér við. Fyrir börnin var þarna mjög falleg hringekja, Parísarhjól og einnig gekk lítil lest um svæðið. Þarna var mjög margt fólk og m.a. stóð yfir Jazz Fest og voru nokkrar hljómsveitir að leika. Mikil bátaumferð var þarna við ströndina, bátar af öllum stærðum og gerðum - allt frá gömlum rækjubátum til myndarlegra skemmtisnekkja. Mikið var um seglbáta og síðan voru ýmsir að leika sér á sjósleðum (sjóköttum). Mér finnst þetta tvímælalaust skemmtilegasti staðurinn sem ég hef komið á ennþá hér suðurfrá.
26 september 2003
Harðarsaga og Hólmverja
Undanfarna daga hef ég verið að kljást við verkefni úr Harðarsögu og Hólmverja og heitir það Konurnar í Harðarsögu. Þetta hefur ekki verið auðvelt skal ég segja ykkur. Lesefni mitt undanfarin ár hefur fyrst og fremst verið sögur eftir John Grisham þar sem allt snýst um sjálft plottið en í þessari sögu er það næstum því aukaatriði. Hér snýst málið um uppruna, ættir, gjörfileika, yfirnáttúrulega eiginleika o.fl. í þeim dúr. Þá þarf maður að tína upp parta hér og þar til að kynnast hverri persónu. En þetta er samt búið að vera gaman. Verkefnið er á síðustu metrunum og fer í póst á mánudag.
Núna í vikunni er verið að frumsýna hina ýmsu þætti sem eiga eftir að ríða húsum hjá Bandaríkjamönnum í vetur (og að sjálfsögðu hjá öðrum þeim þjóum sem kaupa þessa þætti). Marga þessa þætti þekkjum við Íslendingar mæta vel, ég nefni ER, Friends, West Wing, Aliens, Law and Order, CSI, Sopranos of.l. Dagblöðin gera mikið af því að fjalla um þessa þætti (enda eru stórar auglýsingar í blöðunum frá sjónvarpsstöðvunum) og hér er allt mælt í áhorfi (raitings). Hér er fyrirtæki sem heitir Nielsen sem mælir áhorfið og er mikil keppni milli stöðvanna.
Hér má sjá áhorf í síðustu viku - birti seinna frá þessari viku.
Top Ten Primetime Broadcast TV Programs
For week of 9/15/03-9/21/03
Rank* Program Network Household Rating** Total Viewers***
1 NFL Monday Night Football ABC 12.9 18,334,000
2 Survivor: Pearl Islands-S(S) CBS 12.4 21,502,000
3 Emmy Awards (S) FOX 11.8 17,937,000
4 NFL Monday Showcase ABC 9.8 14,462,000
5 Everybody Loves Raymond CBS 9.7 14,372,000
6 ABC News Special-9/16(S) ABC 9.4 13,955,000
7 CSI CBS 9.2 14,080,000
8 Friends NBC 8.8 12,916,000
8 Law And Order NBC 8.8 12,249,000
10 CSI: Miami CBS 8.2 11,647,000
Ég hef nú lokið við að setja upp persónulega heimasíðu, þ.e.a.s. ég er ekki búinn með síðuna en hún er komin á vefinn. Ef menn vilja kíkja á hana þá er hún hér.
Nú liggur næst fyrir að fara á æfingasvæið og slá nokkra golfbolta því við Haukur ætlum í golf á sunnudag.

24 september 2003
Ferð á listasafn
Í dag fórum við Hilma á listasafn - Museum of fine Arts í Houston. Ég ætla að spara mér bloggið og vísa bara í það sem Hilma skrifaði. Ég er sáttur við mest allt sem hún segir.
23 september 2003
Djass í Houston
Í gærkvöldi fór ég með Hilmu dóttur minni á tvo djass-staði í Houston. Annar heitir River Café og hinn heitir Sambuca Music. Á fyrri staðnum var lítil hljómsveit og söngkona og léku þau og sungu svona popp-latin-djass og gerðu það ágætlega. Þarna dvöldum við dágóða stund en fórum síðan niður í miðborgina á hinn staðinn sem var virkilega flottur, hátt til lofts og vítt til veggja. Sambland af stórum djassbar og fínum veitingastað. Þarna var fjögurra manna hljómsveit að spila mjög svo blandaðan djass og með þeim var söngkonan Yvonne Wasington, þrumugóð djasssöngkona. Tók hún m.a. mjög svo djassaða útsetningu á Route 66. Á þessum stað er lifandi djass spilaður öll kvöld vikunnar og liggur þar frammi dagskrá fyrir sept-okt. Vorum við Hilma ákveðin í að kíkja þarna við 3. eða 4. október en þá spilar Ezra Charles. Ég læt fylgja með umsögn um hann:
„Ezra Charles and the Works are truly a Texas phenomenon: an original-music band that has flourished on the Gulf Coast for over 15 years. Essentially, a combination of Boogie-Woogie, Swing, Rockabilly and Blues, their music appeals to a diverse range of genres. Ezra Charles and the Works coin a style that´s alll their own and it´s unmistakable that it was born and bred in Texas".
Læt svo vita hvernig þessir kappar standa sig. Annars tökum við Hilma menninguna með trompi þessa dagana því við ætlum á listasafn síðar í dag. Meira um það síðar.

22 september 2003
Vefrallý
Suðurnes!
Í þessum vefleiðangri eigið þið að svara spurningunum hér fyrir neðan og svörin getið þið fundið á heimasíðum sveitarfélaganna en tenglar inn á þær eru hér fyrir neðan. Verkefnið má að hámarki taka 30 mínútur og þið þurfið að skrá hjá ykkur tímann sem það tekur ykkur. Á svarblaðið ykkar eigið þið að skrá hvað klukkan er þegar þið byrjið og síðan hvað klukkan er þegar þið eruð búin að svara öllum spurningunum. Ef þið eruð ekki búin að finna öll svörin þegar 30 mínútur eru liðnar þá verðið þið að stoppa og skila verkefninu til kennarans. Gangi ykkur vel.
Á Suðurnesjum eru fimm sveitarfélög og þau heita Gerðahreppur, Grindavík,
Reykjanesbær, Sandgerði og Vatnsleysustrandarhreppur.
1. Þann 1. desember 2002 voru 10.914. íbúar í Reykjanesbæ. Hver var íbúatalan í hinum bæjarfélögunum fjórum?
2. Hvaða ár var barnaskólinn í Gerðahreppi stofnaður og hver stóð fyrir stofnun hans?
3. Hver er útivistartími 12 ára barna í Grindavík á tímabilinu 1. maí - 1. september?
4. Við hvaða götu eru bæjarskrifstofurnar í Sandgerði?
5. Hvað er félagsmiðstöðin í Vogum kölluð?
6. Hver er opnunartími Byggðasafns Gerðahrepps?
7. Nefndu einn stað sem er á Náttúruminjaskrá í Vatnsleysustrandarhreppi?
8. Hvað heita grunnskólarnir fjórir í Reykjanesbæ?
9. Hvenær var Sundhöll Grindavíkur tekin í notkun?
10. Þegar ekið er frá Keflavík til Sandgerðis er ekið yfir heiði. Hvað heitir hún?
Garður
Grindavík
Reykjanesbær
Sandgerði
Vatnsleysustrandahreppur

19 september 2003
Hugleiðingar
Nú hef ég verið hér í Houston í þrjár vikur og eins og alltaf er nú hver dagurinn orðinn að mestu leyti öðrum líkur. Að vísu fór ég í gær með Hlyn á karateæfingu og það var ansi gaman að fylgjast með smáfólkinu æfa sig í þessari fornu íþrótt. Annað hef ég svo sem ekki að tala um svo mér datt í huga að tímabært væri að koma með hugleiðingu um lífsins tilgang - hvað annað. Fyrst þarf að hugsa um hvað líf er. Við fæðumst, lifum og deyjum. Líf okkar mannanna er mismunandi langt að meðaltali, á Íslandi, í Japan og nokkrum öðrum löndum er meðalaldurinn hátt í 80 ár en í ýmsum þróunarlöndum er meðalaldur aðeins í kring um helmingurinn af því. Á þessu tvennu er að sjálfsöðgu mikill munur en en það segir í raun ekkert um gæði lífsins hjá fólkinu. Það er þó líklegast að lífið í flestum þróuðum iðnaðarlöndum sé fólki eitthvað auðveldara, þ.e. hin svokallaða lífsbarátta er léttari, en það segir heldur ekkert um gæði lífsins. Það er mín skoðun að gæði lífsins felist að miklu leyti í því hvað sérhver einstaklingur er fær um að gera sem best úr sínum aðstæðum á hverjum tíma. Fólk getur lifað í allsnægtum en samt verið svo óhamingjusat og ósátt við líf sitt að það getur ekki hugsað sér að lífa því. Fátækt kemur alls ekki í veg fyrir að fólk sjái jákvæða þætti í lífinu. Þá er það spurningin um það hvort við séum hér á jörðinni í einhverjum sérstökum tilgangi. Það verður að viðurkenna það að sumir (reyndar mjög margir) eru á þeirri skoðun og vísa þá til tilvistar æðri máttarvalda. Ég verð víst að viðurkenna að ég deili ekki þeirri skoðun, því miður mundu margir segja. Þegar litið er til baka á þessar milljónir ára sem maðurinn og forfeður hans hafa lifað og þrónun mannsins skoðuð, litið til annarra lífvera til samanburðar og síðan skoðað stöðu mannsins í dag, þá verður niðurstaða mín þessi: Af ástæðum, sem ég a.m.k. kann engar skýringar á, þá er maðurinn eina lífveran á jörðinni sem býr yfir nægum vitsmunum til að móta umhverfi sitt að sínum þörfum, þörfum sem breytast stöðugt og þá e.t.v. í samræmi við þær breytingar sem maðurinn sjálfur hefur skapað. Nú ætla ég í lokin að taka eitt mál enn til umræðu áður en ég hætti þessu þvaðri: Trúmál - æðri máttarvöld. Staðan hvað þau mál varða er þessi: Enn sem komið er eiga trúmál, æðri máttarvöld og ég frekar ósamræmda samleið. En ég mun halda áfram að velta þeim málum fyrir mér.
Megið þið eiga góðan dag.
Megið þið eiga góðan dag.
17 september 2003
Og börnin fara í skólann
Undanfarnar vikur hef ég gegið með Hlyni dóttursyni mínum í skólann á morgnana. Það er stutt að fara, aðeins um 200 m. Það er gaman að fylgjast með og sjá foreldra og börn koma úr öllum áttum en rétt fyrir kl átta eiga nemendurnir að vera komnir í raðir sínar á skólalóðinni. Skólinn stendur við nokkuð fjölfarna götu en ábúðamikil gangbrautarvarða sér um að börn og foreldrar komist snuðrulaust yfir hana. Það er nokkuð algengt að foreldrar séu með yngri börn með sér, annaðhvort á arminum, í kerru eða þá sér við hönd. Nokkuð algengt er að foreldrarnir sér með kaffibollann sinn með sér og sötri úr honum á leiðinni. Fólk býður almennt góðan daginn og sumir nota tækifærið og spjalla saman. Veðrið hefur nær undantekningarlaust verið gott og því eru stuttbuxur og bolur algengasti klæðnaðurinn bæði hjá börnum og fullorðnum. Þó má sjá nokkra feður sem eru greinilega á leið í vinnu og má þá spá í við hvers konar störf er um að ræða með því að skoða klæðnaðinn. Ein ung hjón koma til skiptis með dóttur sína og eru þá með tvö yngri börn í mjög þægilegum dráttarkassa. Á leiðinni til skólans bjóða nágrannarnir okkur Hlyni góðan daginn og spyrja hvernig við höfum það. Þessi morgunstund gengur mjög rólega fyrir sig og er þægileg byrjun á skóladeginum.
Stundum heimsæki ég Hlyn í hádegishléinu því honum finnst það mjög gott. Ekki finnst mér hann mjög duglegur að borða matinn sinn, svona rétt nartar í hann. Börnin virðast hlýða vel þeirri reglu að sitja kjurr við borðin sín en það er mikið spjallað. Þarna er við gæslu mjög raddsterkur maður ca 2 m á hæð og þegar honum finnst að hávaðinn sé orðinn og mikill þá lætur hann í sér heyra. Við það lækkar kliðurinn smá stund en svo fer í fyrra horf. Þegar matartíminn er búin skiptast nemendurnir á við að þrifa borðin eftir sig og þá kemur kennarinn þeirra að sækja þau.
Þegar ég svo geng til baka að húsinu þá liggur USA Today í plastpoka á lóðinni við húsið og þá er alveg gráupplagt að fá sér morgunkaffið og kíkja í blaðið.

16 september 2003
Til hamingju Hlín
Oft var þörf en nú er nauðsyn. Ég ætla að nota þennan vetvang til að óska Hlín dóttur minni til hamingju með Mastersáfangann sinn en hún var nú fyrir helgina að skila af sér mastersritgerðinni (tók sálfræðipróf frá HÍ vorið 2002 og hóf nám við The University of Cranfield í Englandi haustið 2002). Hlín hefur starfað sem flugumferðarstjóri vel á annan áratug og námið hennar í Englandi var tengt því sviði þó ég kunni ekki nákvæmlega frá því að segja. Alt um það þá dvaldi hún og fjölskylda hennar þennan tíma í Cranfield, börnin (Hugi 7 og Helga 11) gengu í skóla og eiginmaðurinn, Guðbjörn Árnason landbúnaðarhagfræðingu og starfsmaður KPMG á Íslandi, sá um að reka heimilið (sem og hann gerði með myndarbrag eftir því sem næst verður komist). Við hjónin heimsóttum þau í sumar og kynntumst m.a. skólum barnanna og var unum að sjá hversu vel þau voru að standa sig. Það vakti m.a. ánægju hjá kennara Huga þegar hann með tilheyrandi tilburðum kvað Tom Jones vera sinn mann! Mér finnst þetta vera mikið afrek hjá Hlín (og reyndar þeim öllum) og ég hef sagt við hana á síðustu dögum (kannski í gamni - kannski í alvöru) - jæja þá er það doktorinn næst. En þið látið það ekki fara lengra!
Nú er aðeins farið að slá á hitann hér í Houston en menn hafa á Austurströndinni áhyggjur af fellibyl sem er að bylta sér úti á Atlandshafi. Vonum að hann fái hljóðlátt andlát.
Ekki meira að sinni.

Verkefni
Verkefni í Upplýsingatækni og skólastarfi – 14. sept. 2003
Hér eru hugmyndir um tvö verkefni sem skila á í námskeiðinu Upplýsingatækni og skólastarf. Ég er reyndar að mestu búinn að búa til heimasíðu fyrir vefrallýið en lenti í vandræðum við að setja hana út á netið. Það kemur því vonandi upp á næstu dögum.
1. Vefleiðangur eða vefrallý öðru nafni:
Verkefnið er um sveitarfélögin á Suðurnesjum, fimm að tölu. Spurningar verða 10 og eru svörin að finna á heimasíðum sveitarfélaganna og verða settir upp tenglar á forsíðu.
Verkefnið snýst um tíma, þ.e. hversu langan tíma það tekur nemandann að leysa úr öllum svörunum en að hámarki eru gefnar 30 mínútur. Nemendur fá blað til að svara á, merkja sér það og skrá hvenær þeir byrja á verkefninu og hvenær þeir ljúka því.
2. Kennsluefni í power point:
S.l. vor setti var ég með stutt námskeið (4-6 tíma) fyrir nemendur og kennara í FrontPage. Ég hef hugsað mér að setja upp power point kynningu fyrir slíkt námskeið og myndi það líklega vera á 5-7 glærum. Síðan mætti prenta út glærurnar og nota sem stuðningefni við kennsluna.
Annars fór ég í bíó í kvöld og sá nýja mynd með Nicolas Cage, The Matchstick men
Hún var bara mjög góð. Bíóið var reyndar eitt hið skemmtilegasta sem ég hef komið í, Edwards í Houston. Mjög stórt og margskipt anddyri með fjöldan allan af stórum máluðum myndum sem sýndu ýmsar af helstu störnum síðustu ára. Mjög glæsilegt allt saman. En þar sem í dag var mánudagur þá voru samkvæmt venju ekki mjög margir í bíó. Ég fór með Hilmu dóttur minni og sáum við sýnishorn úr mörgum myndum sem eru væntanlegar fram að jólum. M.a. var þar ein með Hugh Grant, mynd úr smiðju þeirra sem gerðu Four weddings and a funeral, Notting Hill o.fl. Þar leikur Hugh forsætisráðherra Englands og eins og að líkum lætur lendir hann í mörgum vandræðalegum uppákomum.
Látum þetta nægja í bili

13 september 2003
Samskiptakerfi á netinu
Það er þetta með samskipti um netið. Ég held maður geti varla nóg dásamað þau þægindi og skemmtilegheit sem þeim fylgja. Svoleiðis hefur háttað í minni fjölskyldu undanfarið ár að ein dóttir mín hefur verið við nám í Englandi, önnur í Texas og sú þriðja býr í Kópavoginum. Við höfum í nokkur ár notað MSN frá Microsoft og fljótlega fengum við okkur litla netmyndavél frá Logitech. Með þessum útbúnaði höfum við haldið uppi stöðugu sambandi við fjölskyldurnar og það hefur gengið mjög vel. Sérstaklega hefur verið gaman að geta fylgst með barnabörnunum sem og að fylgjast með daglega lífinu hjá fjölskyldunum. Jafnvel er þó nokkuð um MSN-samskipti við fjölskyldu sonarins sem þó býr í Keflavík eins og ég. Við erum með ADSL sítengingu og það hefur komið í ljós að þrátt fyrir allmikla notkun á MSN þá hefur það ekki haft neinn aukakostnað í för með sér. Ég mæli með þessu kerfi.
Móðurmjólkin
Já, það verður ekki á hana logið, móðurmjólkina, hún er ,,powefull stuff" eins og töffararnir myndu segja. Ég er alveg heillaður af þessu efni sem ég er að lesa í námskeiðinu Heilsuefling. Nú síðast hef ég verið að lesa um brjóstamjólkina og næringarfræði smá- og yngri barna. Auðvitað vissi ég nú eitt og annað um móðurmjólkina (m.a. hefur manni verið sagt í gegnum tíðina að maður hafi nú fengið eitt og annað með henni, ja ég nefni hlýðni, skilning á málverndun og sitthvað annað - en þetta var nú útidúr) en að hún væri svona vel úr garði gerð vissi ég ekki fyrr en nú. Fyrstu 1 - 4 mánuði í lífi hins nýfædda barns sér móðurmjólkin því fyrir öllum næringarefnum sem það þarf á að halda til að það haldi áfram að þroskast. Ekki nóg með það heldur er í mjólkinni ónæmisvörn barninu til handa. Í þeim tilfellum sem börn geta ekki fengið brjóstamók og þau fá tilbúið mjólkurduft þá er leitast við að búa það þannig úr garði að það búi yfir sem flestum eiginleikum brjóstamjólkuinnar. Ef barnið fær kúamjólk þá verður að sjá því fyrir viðbótarnæringarefnum því blessuð kúamjólkin stendur brjóstamjólkinni töluvert að baki.
En snúum okkur að öðru og það snertir næringu aðeins eldri barna. Skóladagurinn hefur sífellt verið að lengjast og því hefur að sjálfsögðu fylgt margháttaðar breytingar fyrir börnin. Nú fá þau flest einhvern mat í skólanum sínum og er það að sjálfsögðu hið besta mál. Matmálstímar í skólanum eru liklegast á tímabilinu frá 11 - 13. Það getur því liðið ansi langur tími frá því að nemendurnir borðuðu morgunmat. Það hjálpar þó ef þeir hafa með sér nesti og borða það í kringum 9:30 eða svo. En þá er að nefna vandamálið: Talið er að af hverjum 30 börnum séu það 4 sem ekki borða morgunverð! Það er því miður allt of algengt að börn komist upp með það að fara í skóla á morgnana án þess að borða staðgóðan morgunverð. Jafnvel hafa þau ekki með sér nesti og eiga e.t.v. ekki möguleika á að fá neitt að borða fyrr en kemur að skólamáltíðinni. Það er nærri útilokað fyrir slíkt barn að komast gegnum morguninn á sambærilega hátt og þau börn sem bæði hafa fengið morgunverð heima og eru síðan einnig með nesti. Barnið er órólegt og því gengur illa að einbeita sér og kennslan fer fyrir ofan garð og neðan hjá því. Það getur jafnvel lent í því að framferði þess verði flokkað undir athyglisbrest og ofvirkni. Hér á skólinn skilyrðislaust að hafa samráð við foreldra um leiðir til úrbóta og m.a. stuðla að því að forráðamenn slíkra barna fái einhverja fræðslu um nauðsyn nægilegrar og fjölbreyttrar fæðu fyrir almenna líkamsstarfsemi barnsins.
Læt fylgja með krækju inn á fæðupyramýdann sem bandaríkjamenn halda mikið upp á þótt talið sé að aðeins lítið hlutfall barna nái að uppfylla þann standard sem þar er settur.
Læt þetta duga í bili.

10 september 2003
Svo lengi lærir sem lifir.
Eitt að þeim námskeiðum sem ég er í um þesasr mundir nefnist Heilsuefling. Í fyrstu tímunum hefur verið fjallað um meðgöngu og þroskaþróun fóstursins. Þetta er mjög áhugavert efni að sjálfsögðu og hefur komið í ljós að þarna kemur margt fram sem ég vissi ekki mikið um. Mig langar því að blogga smávegis um það. Ég gerði mér t.d. ekki grein fyrir því hvað líkamlegt atgervi konu fyrir getnað hefði mikið að segja. Þ.e.a.s. verðandi mæður þurfa í raun að undirbúa sig líkamlega áður en þær verða barnshafandi svo að líkurnar fyrir góðri meðgöngu og vel þroskuðu fóstri verði sem bestar. Rannsókinr hafa m.a. sýnt að líkamsþyngd konunnar hefur hér mjög mikið að segja bæði þyngd fyrir getnað og einnig þyngdaraukning meðan á meðgöngu stendur. Fæðingarþyngd barna er einn besti vottur þess að um heilbrigt barn sé að ræða. Konur sem eru mjög grannar (underweight) eignast oftast minni börn en konur sem eru þyngri. Vandamál geta einnig skapast hjá konum sem eru of þungar (overweight) því þær eiga oft við ýmsa sjúkdóma að stríða sem geta haft afdrifarík áhrif á þroska fóstursins.
Meðan á meðgöngu stendur skiptir miklu máli að móðurin nærist á fjölbreyttum og næringaríkum mat. Þess ber að geta að hún þarf að bæta við sig sem nemur 10-15% því fóstrið fer fljótlega að taka töluvert til sín til viðbótar þeim breytingum sem verða á líkama móðurinnar. Það má ætla að a.m.k. íslenskar konur fái nægilega næringu úr því matarræði sem hér tíðkast en þó er það eitt efni sem konur verða sérstaklega að vera á varðbergi með. Það er vítamínið fólasín en það á mikinn þátt í að heili og mæna fósturs nái að þroskast á réttan hátt. Konur á barneignaraldri þurfa um 0,4 mg af folasin á dag. Til að tryggja nægilegt magn er best að sameina inntöku bætiefna með folasin og mataræði sem byggir á ávöxtum, ávaxtasafa og grænmeti.
Ég býð spenntur eftir framhaldinu því ég vonast til að halda áfram að rifja upp og bæta við mína fyrri þekkingu um þessi og önnur efni er varða heilsueflingu því ég veit að ég mun örugglega geta nýtt mér það við að fræða mína nemendur um þessi mál á næstu misserum. Þeir eru jú flestir verðandi foreldrar.

06 september 2003
Tíminn Flýgur
Hafið þið nokkuð tekið eftir því hvað tíminn flýgur áfram þegar maður þarf mest á honum að halda. Þetta fyrst mér allavega. Ég hef verið að lesa um setningafræði í bókinni,,Handbók um málfræði" og það sem ég les rennur allt saman í eina bendu. Ég þarf því örugglega að lesa það nokkrum sinnum yfir til að sortera það sæmilega í huganum. En mitt í þessum tímahugleiðingum er gaman að sjá að tíminn hefur líka á sér aðrar myndir. Ég nefni sem dæmi að ein dætra minna hefur í huga að fá sér hund o gþá á ég við hund með stóru H - Grand Danious. En hann kæmi þó ekki fyrr en um mitt næsta ár.
Annars er maður núna bara að bíða eftir að leikurinn við Þýskaland hefjist og kannski er að renna upp stærsta stund íslenskarar fótboltasögu - við vonum það alla vega. Góða skemmtun.

04 september 2003
Skólaheimsókn
Ég fór í gær á ,,Open House” í skólanum hans Hlyns , Roberts Elementary School, en þar er Hlynur í fyrsta bekk. Skólinn hýsir nemendur í Kintergarden sem og nemendur 1, - 5. bekkjar. Mikill fjöldi foreldra var þar mættur með börnin sín og var fyrst safnast saman í matsal skólans þar sem skólastjórnendur og forystumenn foreldrafélagsins fluttu ávarp. Þarna voru allir starfsmenn skólans leiddir fram og kynntir. Að sögn skólastjóra er skólinn nokkuð vel settur bæði hvað snertir akademiska framgöngu nemenda sem og á flestum öðrum sviðum. M.a. hafði umsjónarmaður skólaloðarinnar, Mrs Jenny, fengið viðurkenningu af hálfu umhverfissviðs borgarinnar. Það var merkilegt að hlusta á ávarp forystumanna foreldrafélagsins þar sem tíunduð voru þau verkefni sem hafa verið unnið og lýst því sem framundan væri. Ekki síst vekur athygli hversu félagið er duglegt að að afla fjár til ýmissa verkefna sem unnin eru af hálfu skólans. Á síðasta ári söfnuðust um 8 milljónir kr. Þar af fengu skólastjórnendur um 3,5 milljónir til að greiða fyrir forfallakennslu á meðan hinir ýmsu kennarar skólans voru á námskeiðum, í kynnisferðum o.fl. Skólinn hefur sett sér þau markmið að taka virkan þátt í samstarfi skóla bæði á landsvísu sem á alþjóðlega vísu og því eru margir kennarar að kynna sér slíka starfsemi. Foreldrafélagið aflar fjár eftor fjölmörgum leiðum en féð kemur þó að mestu leyti úr vösum foreldra nemenda skólans.
Að loknum ávörpum gafst tækifæri til að fara í skólastofur nemenda sem og að skoða annað húsnæði skólans. Ég skoðaði með athygli stofu Hlyns og ræddi við kennara hans. Það vakti athygli mína hversu vel útbúin stofan var. Hver einasti lófastór blettur á veggjum var þakinn með haganlega uppsettu efni, efni sem notað er við kennslu í hinum ýmsu fögum, s.s. lestri, skrift, stærðfærði, vísindum o.fl. Í einu horni stofunnar var lestrarhorn með sæti fyrir átta. Í öðrum hluta stofunnar var vinnusvæði með miklu af áhugaverðu efni. Það voru í stofunni einar fjórar tölvur og á einum stað var aðstaða þar sem fjórir nemendur gátu samtímis hlustað á hljóðsnældur um heyrnartæki. Að lokum skoðaði ég bækur nemendanna og sýndist mér þær vera mjög góðar. Skólinn var í alla staði hinn snyrtilegasti og var honum greinilega vel við haldið. Að sögn skólastjóra létu sjö kennarar af stöfum eftir síðasta skólaár og var það af ýmsum ástæðum, s.s. barnseignarfrí, námsleyfi, flutningar af svæðinu o.fl. Alls 204 umsóknir bárust um þessi störf þannig að engin vandkvæði voru við það að ráða nýja kennara.
Þessi heimsókn tók um klukkustund og var hin ánægjulegsta fyrir okkur báða.

03 september 2003
Öðruvísi nám
Það má með sanni segja að þetta fjarnám er nokkuð frábrugðið því sem maður kynntist í gamla kennó. Engin stundatafla - bara einhverjar dagsetningar á næstu vikum sem maður þarf að passa. Svo verður að tína til allt efnið sem tilheyrir hverju námkskeiði - sex námskeið kalla á mjög fjölbreytilegt efni. Svo má maður ekki brenna sig á því að gleyma sér í einhverju einu viðfangsefni, tíminn flýgur áfram og allir verða að fá sinn skammt. Það háir mér dálítið að ég hef ekki enn náð að logga mig inn á WebCT. Getur einhver hjálpað mér við það.
Annars er mjög fínt að vera hér úti í Texas, mjög hlýtt og notalegt og dóttursynir mínir sjá um að mér leiðist ekki. Við hjónin áttm smáafmæli um daginn og þá var mér boðið á kaffihús. Hér má sjá myndir frá því. Albúmið heitir undur.
Jæja það er víst best að fara að vinna.
Kveð að sinni.

02 september 2003
Sammála Hilmari
Góðan daginn bloggarar
Ég hef verið að sökkva mér niður í verkefnin frá henni Salvöru (og þau eru engin smásmíði) og m.a. verið að lesa hvað þátttakendurnir á námskeiðinu um Upplýsingatækni og skólastarf hafa verið að segja. Eftirfarandi sá ég hjá Hilmari Haf.: ,,Það er merkilegt að upplifa hvað áherslur í tölvukennslu eru fálmkenndar og ómarkvissar í íslensku skólakerfi.# Þetta er nokkuð stór alhæfing því sjálfsagt telja sig margir vera að byggja upp markvisst nám á þessu sviði. Ég get þó í raun fallist á skoðun Hilmars en það gæti verið gaman að spjalla um hvaða leiðir þyrfti að fara til að bæta hér um. Mín skoðun er sú að það þyrfti að byrja á því að bæta almennt aðgengi nemenda í grunnskólum að tölvubúnaði. Ein tölvustofa með aðgangi í 1 - 2 tíma á viku segir ansi lítið. Það þurfa að vera a.m.k. nokkrar tölvur í hverri stofu, t.d. það margar að 1/4 nem. gætu unnið á þeim í einu. Það er núorðið til það mikið af efni á vefnum að það ætti að tryggja notkun þeirra við nám í flestum námsgreinum.
Læt þetta duga að sinni en gaman væri að heyra frá öðrum.
Helgi

31 ágúst 2003
Kominn til Houston
Eftir nokkuð langt ferðalag sem hófst í Keflavík þann 28. ágúst sit ég nú við tölvu í Houston í Texas og helda áfram að ,,blogga". Hér er nú í heitara lagi en vel þolanalegt. Einmitt þegar ég opnaði póstinn minn þá voru þar fyrir bréf frá Sölvöru og Baldri - svona áminning um að það verður að láta hendur standa fram úr ermum. Ég flaug fyrst til Indianapolis, missti þar af tengiflugi, týndi farseðlinum mínum og þurfti að bíða þarna í einn sólarhring. Það var svo sem ekki alslæmt þó það kostaði sitt því mér tókst að lesa mest alla Snorra-Eddu á meðan. Skemmtilegur lestur það og ótrúlegur skáldskapur!
Annars var það mjög skemmtilegt að hitta fólkið sitt hér í ríki Bush og hlakka ég mikið til að eyða hér næstu 10 vikur. Hlynur(6) og Skúli (2) tóku sérstaklega vel á móti mér og Hilma og Haukur svo sem ekki síður.
Jæja er ekki rétt að gefa fólki eitthvað að öfunda mig af: Ég gæti alveg hugsað mér að hlusta smávegis á jazz og blues meðan ég verð hér og þetta er ég búinn að kynna mér um blúsinn.
Best Blues Club Best of Houston 2002:
Miss Ann's Playpen
Address: 3710 Dowling, 713-520-9686
For years, Dowling Street was Houston's home of the blues. Lightnin' Hopkins and company plied their trade at any number of bars along the strip, which was once the main artery of black Houston south of Buffalo Bayou. But by the '70s, Dowling was in the doldrums. Several years ago, Miss Ann's proprietor Bobby Lewis set out to change all that. Now Miss Ann's Playpen has brought the blues back to where it's always been, and Lewis sees to it that it is presented the way it should be. The Blue Monday jams have already become a fixture on the city's music map, and the star-studded affairs have been known to feature everyone from up-and-coming acts to legends like Joe Hughes, Sherman Robertson and I.J. Gosey. Lewis keeps the sound level low enough to allow conversation and occasional audience participation, the beer is cold and cheap, and the soul food buffet offers up comfort food de luxe. Hey, hey, the blues are back on Dowling Street, and it's all right
Kveð að sinni,
HH

20 ágúst 2003
Góð byrjun
Jæja. Þá er vikan í KHÍ liðin og veður gaman að sjá hversu mikið maður hefur tekið með sér þaðan. Mér fannst mjög gaman að vera í tímum hjá þessum ágætu kennurum og ég reikna svo sannarlega með að bera nokkuð úr býtum við annarlok. Ég flokkast undir skilgreininguna K-nemi, þ.e. ég er starfandi kennari í námsleyfi þetta árið.
Mér sýnist að þetta blogg-kerfi geti komið að góðum notum á mið- og unglingastigi við hverskonar ritun. Kerfið er mjög aðgengilegt og alls ekki flókið í notkun. Ég hlakka því til að nýta mér það a.m.k. þegar ég fer að kenna aftur næsta haust. Ég hef stundum gert um það könnun í mínum skóla hversu margir hafa aðgang að tölvu með internettengingu. Síðasta könnun leiddi í ljós að um 75% nemenda míns bekkjar voru nettengdir. Það þyrfti þá að veita þessum 25% aðgang í frjálsum tímum í skólanum.
Gaman væri að heyra hvort einhverjir hafa verið að prófa sig áfram með þetta.

19 ágúst 2003
Leitin að námskeiði
S.l. laugardag var ég skráður á námskeið sem nefndist Læsi á mið- og unglingastigi. Var ég mættur í skólann fyrir kl. 13 en námskeiðið átti að hefjast kl. 13:05. Ég leitaði að upplýsingum um í hvaða stofu ég átti að mæta og ég las örugglega allar tilkynningar sem ég fann upp um alla veggi í anddyri, við nemendaskráningu, inni í Hamri en allt kom fyrir ekki. Ég fann ekkert. Nú klukkan var nú farin að ganga tvö og enginn starfsmaður við í skólanum sem gæti gefið upplýsingar. Ég gerði því það sem flestir höfðu gert í mínum sporum - flýtti för minni á Menningarnótt og átti hinn skemmtilegasta dag allt framundir það að flugeldasýningu lauk en þá brunaði ég til Keflavíkur á undan mestu umferðinni.
Ég komst síðan að því á mánudeginum að námskeiðið góða hafði verið fellt niður (grunaði ekki Gvend) og nú er ég búinn að skrá mig á námskeiðið heilsueflingu eftir hádegi í dag. Ég vona bara að það gufi ekki upp því þá er hætt við að ég verði hálf heilsulaus á þessum þeytingi.

18 ágúst 2003
Hrefnuveiðar Íslendinga
Nú eru hvalveiðar Íslendinga að hefjast.
Ekki eru náttúruverndarsamtök eins og Greenpeace hrifin af því.
BBC í Bretlandi flytur frétt um þetta mál.
Það eru ágætis upplýsingar um hvali á Hvalavefnum.
Mörg fyrirtæki selja ferðamönnum núna hvalskoðunarferðir. Þau eru ekki ánægð með þessar veiðar en Hafrannsóknarstofnun telur þær nauðsynlegar.

17 ágúst 2003
Bloggið prófað
Salvör er búin að stofan fyrir mig bloggið og nú er ég að prófa það í fyrsta skipti. Mér sýnist þetta vera tiltölulega meðfærilegt verkfæri og nú er bara að valda Salvör ekki vonbrigðum og blogga þetta 2-3 í viku. Það verður gaman að fylgjast með hinu fólkinu á námskeiðinu og læra af því.
Læt þetta nægja í bili.
Læt þetta nægja í bili.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)