Ég hef fengið hvatningu um að láta merkið ekki niður falla og halda áfram að blogga reglulega. Spurt var á heimasíðunni minni hvort ekkert væri að gerast hérna suðurfrá. Hér er ávallt eitthvað að gerast. Við Brynja brugðum okkur í Reykjavík eftir vinnu á föstudag og dunduðum okkur í nokkra tíma, keyptum nokkrar jólagjafir o.fl. Enduðum síðan á matsölustað í Hafnarfirði og vorum ekki komin heim fyrr en kl. níu um kvöldið. Á laugardeginum svaf Brynja frameftir lengur en elstu menn muna en eftir hádegið fórum við með Hrund í bæinn því hún var að fara á Haustfund dýralækna. Við dunduðum okkur smávegis í viðbót og skoðuðum m.a. jólaþorf í Hafnarfirði og tókum þátt í tíu ára afmæli Fjarðar í Hafnarfirði. Við fréttum af því að Helgi Benni var að keppa í fótbolta og Hugi í körfu og voru þeir báðir að standa sig mjög vel. Þegar heim var komið eldaði ég súpu og familían á Heiðarbrautinni mætti og síðan Gísli og Hrund í kaffi og ís. Á sunnudeginum mætti vinnuhópur til Brynju og ég fór að vinna í skólanum mínum, skrapp þá reyndar í aðventukaffi í Glaðheimum hjá foreldrafélagi leikskólans. Það var ágætt. Ég náði síðan á sunnudeginum að ljúka þeim heimilisstörfum sem ég átti eftir en Helenda Brynja, sem er að vinna sér fyrir utanlandsferð með líðinu sínu, kom á laugardeginum og ryksugaði. Um kvöldið fór ég síðan á leik Keflavíkur og Snæfells í bikarkeppninni en þar sá Snæfell aldrei til sólar en Keflavík sýndi hvers vegna þeir eru efstir í sínum riðli í Evrópukeppninni! Sem sagt góð og viðburðarrík helgi og ekki skemmdi það að við vorum nýbúin að fá tölvudisk með kvikmyndum af þeim Skúla og Hlyni í góðu formi.
Læt þetta nægja í bili.
Helgi
29 nóvember 2004
10 nóvember 2004
Enn lengist verkfallið
Jæja 3. dagur í seinni törn og ekki séð fyrir endann.
Ekki bitu sveitarfélögin á agnið frá KÍ. Búið að fresta samningaviðræðum í
annan gang í tvær vikur. Þetta er augljóslega beiðni um utanaðkomandi
aðstoð án þess þó að segja það beint út. Mér finnst viðsemjendur okkar
vera að gugna á að ráða við málið ein og sér, nota okkur til að krefja
ríkið um meira fé. Kannski tekst það en því ekki að koma hreint fram?
Það verður fróðlegt að fylgjst með framvindu mála hjá landsfeðrum næstu
dagana.
Nóg í bili,
hh

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)