Baldur Skúlason stendur hér við fyrsta teig á Chalmers golfvellinum þar sem B-lið keppti. Brautin er mjög skemmtileg en hún tekur næstum því 90° beygju til hægri - mikill fjöldi trjáa að flækjast fyrir. Völlurinn var í heild nokkuð erfiður og persónulega tókst mér aldrei að komast niður á gott skor (94 - 91 - 96) - hryllilegt. Mun þó reyna að gera betur í Prag á næsta ári - þ.e. ef mér tekst að komast í liðið.
11 ágúst 2007
31 júlí 2007
Helgi Benni á golfnámskeiði
16 maí 2007
Eins og venja hefur verið undanfarin ár buðu nemendur í 10. bekk Stóru-Vogaskóla kennurum sínum og öðru starfsfólki skólans að bragða á þeim réttum sem bekkurinn hefur æft sig í að framleiða í vetur. Að þessu sinni var boðið uppá kaffiveitingar með ýmiskonar meðlæti. Eins og myndin sýnir þá svignaði borðið af kræsingum sem allar brögðuðust mæta vel. Kristín Hulda og Dísa gerðu réttunum góð skil sem og aðrir er mættu til hófsins. Kunnum við nemendum og kennara þeirra bestu þakkir fyrir.
29 apríl 2007
Einbeiting
12 apríl 2007
Hún Helena Brynja er sautján ára í dag
Já það er ótrúlegt en satt að hún Helena Brynja er orðin sautján ára. Það er ekki svo langt síðan finnst mér að við Brynja komum til Þýskalands þegar hún kom í heiminn. En svona er lífið - tíminn flýgur áfram. Við sendum okkar kæru hbh innilegustu hamingjuóskir með daginn um leið og við óskum henni alls hins besta í framtíðinni. Og Helena Brynja - takk fyrir skemmtilega heimsókn á Kirkjuveginn um páskana. Myndin sýnir svo minnstu Brynjuna horfa með athygli á nöfnu sína og ekki skemmdi það fyrir að það var verið að opna páskaeggin!!
11 apríl 2007
Komin heim heil á húfi
Þessi myndarlegi hópur kom í Leifsstöð að morgni 11. apríl eftir langt ferðalag frá LA - hafandi þá dvalið vestra í góðu yfirlæti við að heimsækja kunningja. Mikið golfað og þó nokkuð skoðað. Hrannar og Halla heilsuðu m.a. uppá Keflvíkinginn Inga Haralds í San Diego og urðu þar fagnaðarfundir. Á myndinni eru frá vinstri talið: Ásta, Ásgeir, Gylfi, Sigrún, Hrannar og Halla.
20 mars 2007
Afmæli Helga Hólm og Björns bónda
09 mars 2007
Systur í heimsókn
27 febrúar 2007
Fuglaskari á Fitjum
Í gær fór Brynja litla með okkur inn á Fitjar í Ytri-Njarðvík og vorum við vopnuð brauðhleif úr Valgeirsbakaríi. Það var stillt í veðri en nokkuð kalt. Þarna voru margir fuglar, álftir, gæsir og endur svo eitthvað sé nefnt. Brynju leist vel á og var dugleg að kasta brauðbitum til fuglana. Undir lokin fannst henni nóg komið og fór að stinga bita og bita upp í sig. Eins og sjá má á myndinni var mjög skemmtileg og dulúðleg birta þarna við fuglapollinn. Sem sagt mjög skemmtileg heimsókn á fuglaslóðir.
03 febrúar 2007
Afmælisfagnaður Brynju tveggja ára
27 janúar 2007
Hlynur lærir að prjóna.
Á Bettsýningunni í London
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




