03 ágúst 2009

Ferð að Hvallátrum í júlí 2009


Um miðjan júlí fórum við Brynja ásamt Hilmu, Hlyni og Skúla í skemmtilega ökuferð. Var förinni heitið að Bjargtöngum þar sem ég hafði verið í sveit fyrir rúmlega hálfri öld. Við ókum fyrst að Laugum í Sælingsdal og gistum þar fyrsta kvöldið, við Brynja á Edduhótilinu og hin í tjaldi. Við náðum að fara í sundlaugina þar fyrir svefnin og nætursnarl á herberginu okkar. Við fórum snemma á fætur daginn eftir (6:30) því við vorum búin að bóka okkur með Baldri kl. 09:00. Við fórum í land í Flatey og áttum þar skemmtilega sex tíma í góðu veðri. Þar er mjög áhugavert að koma til eyjarinnar og læra um sögu hennar (sjá: http://www.flatey.is/ ). Við fórum síðan aftur um bórð í Baldur og sigldum að Brjánslæk við mynni Vatnsfjarðar. Við Brynja gistum um nóttina á Hótel Flókalundi en hin tjölduðu skammt frá. Það er afskaplega fallegt þarna og svo vorum við svo heppin að geta farið í sund í lítilli sundlaug sem er í orlofsbyggð sem rekin er sameiginlega af nokkrum verkalýðsfélögum. Um kvöldið buðu tjaldbúarnir upp á kvöldverð sem endaði með því að Hilma bakaði þessa fínu klatta (pancakes) á prímusnum sínum. Moruninn eftir (ekki endilega snemma) var síðan lagt af stað í átt að Patreksfirði. (meira síðar - myndir úr ferðinni eru á Macvefalbúmi mínu).

23 maí 2009

Vantar fleiri fréttir

Hæ stúlkur - nú er 23. maí - hvað varð um 19., 20., 21. og 23. maí?

Gangi ykkur vel.

Helgi Hólm

05 apríl 2009

HBH Íslandsmeistari

Undanfarið hefur átt sér stað mikil úrslitarimma í meistarflokki kvenna í körfunni. Þar hafa tekist á Haukar og KR. Eftir að bæði lið höfðu unnið sína tvo leikina þá fór fram hreinn úrslitaleikur í Haukahúsinu. Þar höfðu Haukarnir sigur og það var glöð og ánægð Helena Brynja sem fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í efsta flokki. Til hamingju kæra HBH.
Posted by Picasa

02 mars 2009

Helgi á Klaustri


Helgina 27. feb. - 1. mars dvaldi stór hluti stórfjölskyldunnar á Kirkjubæjarklaustri í mjög góðu yfirlæti. Hilma hafði leigt hús í eigu læknafélagsins og hún, Hlynur, Skúli, ég, Brynja, Hrund, Gísli, Brynja og Katrín fylgdu henni þangað. Við fengum mjög fallegt veður og nýttum okkur það vel við að skoða ýmsa staði í nágrenninu. Myndirnar á Picasavefalbúminu segja sína sögu um það. Það var margt til afþreyingar í húsinu, s.s. borðtennisborð, lítið poolborð, fótboltaspil, gufubað, heitur pottur svo eitthvað sé nefnt. Við leituðum lengi að Þórbergssetri, héldum að það væri stutt frá Klaustri en það var að sjálfsögðu í Suðursveit austan Lóns. Fékk ákveðið tímabil ferðarinnar heitið Leitin að Þórbergi!! Þegar við svo komum í bæinn á sunnudeginum þá var haldið beint í Frostaskjólið þar sem Björn bóndi var að halda upp á afmæli sitt. Þannig fékkst góður endir á góðri helgi.

18 febrúar 2009

eTwinningráðstefna í Prag 12.-15. feb. 2009


Mér bauðs það ágæta tækifæri að fara á Evrópuráðstefnu um eTwinning sem haldin var í Prag dagana 13. - 15. febrúar s.l. Þetta var mjög stór og vel uppsett ráðstefna með um 400 þátttakendum hvaðanæva að úr Evrópu (sjá http://etwinning.net/ ). Við vorum sjö íslensku þátttakendurnir. Tveir starfsmenn Alþjóðaskrifstofu: Guðmundur I. Markússon og Rúna Guðmarsdóttir. Fimm kennarar: Halla Jónsdóttir, Leikskólanum Furugrund, Kópavogi. Sonja Jónasdóttir, Leikskólanum Sólbrekku, Seltjarnarnesi. (Sigrún Árnadóttir, Menntaskólanum á Egilsstöðum - forfallaðist), Hilda Torres, Verslunarskóla Íslands. Helgi Hólm, Stóru-Vogaskóla, Vogum of Fjóla Þorvaldsdóttir Leikskólanum Furugrund í Kópavogi en hún bættist í hópinn því verkefni sem hún var þátttakandi í varð tilnefnt til verðlauna sem veitt voru á ráðstefnunni. Eins og áður sagði var ráðstefnan vel skipulögð og skiptist hún að mestu í þrjá þætti. 1) Fyrirlestar 2) Vinnustofur. 3) Kynningarbásar þátttökuþjóða.

Margir ágætir fyrirlestrar voru fluttir og fjölluðu nokkrir þeirra um sjálft eTwinningstarfið. Aðalfyrirlesari ráðstefnunar var Edward De Bono (http://www.edwdebono.com/) og fjallaði hann um hugsun manna og þörfina á því að kenna fólki að hugsa. Er óhætt að segja að hann hafi átt athygli ráðstefnugesta óskipta meðan á fyrirlestri hans stóð. Í vinnustofunum var fjallað um margvísleg efni svo sem hvernig hægt væri að nota eTwinning verkfæri í uppeldislegu tilliti, eTeinning og öryggi á netinu og samskipti milli skóla svo eitthvað sé nefnt.

Á ráðstefnusvæðinu voru settir upp 30 - 40 básar þar sem hver þátttökuþjóð setti upp kynningu á viðkomandi landi og þeim verkefnum sem verið var að vinna með. Einnig voru básar það sem fór fram sameiginleg kynning á verkefnum sem unnin voru af mörgum löndum en eTwinning verkefni geta verið bæði unnin af tveimur skólum eða þá allt upp í 100 skólum í mörgum löndum. Það verkefni sem undirritaður er með í nefnist A Living Map of Europe og eru einir 80 skólar með í því verkefni. Það gafst ágætur tími til að fara um sýningarsvæðið og ræða við þá fjölmörgu sem þar voru að kynna sig. Er ekki vafi á að þessi þáttur ráðstefnunnar er mjög mikilvægur og stuðlar efalaust til kynna sem aftur leiða til samstarfs í framtíðinni.

Það er ekki hægt að ljúka við þessi skrif án þess að minnast á Prag. Íslenski hópurinn var mættur nægilega snemma á staðinn til að geta skoðað borgina og að loknum nær þriggja tíma göngutúrs um kastalasvæðið, Karlsbrúna og gamla bæinn þá sitja eftir skemmtilegar minningar um fallega og skemmtilega borg. Og skemmtiatriðin á lokakvöldinu munu seint renna úr minni. Mjög góðum ferðafélögum er þökkuð samfylgdin og ánægjuleg samvera.

31 mars 2008

Pizzakvöld í Frostaskjóli

S.l. laugardagskvöld voru flestir í familíunni mættir í Frostaskjólinu til að gæða okkur á ljúffengum heimabökuðum pizzum. Er ekki að orðlengja það að það var bæði ánægjulegur matur og ekki síður góður selskapur. Við þökkum kærlega fyrir okkur. Myndir eru á heimasíðnni minni. Daginn eftir fórum við Brynja síðan í tvær fermingarveislur.
Posted by Picasa

11 ágúst 2007

Evrópumeistaramót í golfi í Gautaborg 6.-9. ág. 2007


Baldur Skúlason stendur hér við fyrsta teig á Chalmers golfvellinum þar sem B-lið keppti. Brautin er mjög skemmtileg en hún tekur næstum því 90° beygju til hægri - mikill fjöldi trjáa að flækjast fyrir. Völlurinn var í heild nokkuð erfiður og persónulega tókst mér aldrei að komast niður á gott skor (94 - 91 - 96) - hryllilegt. Mun þó reyna að gera betur í Prag á næsta ári - þ.e. ef mér tekst að komast í liðið.

31 júlí 2007

Helgi Benni á golfnámskeiði

Þessir tveir kappar, Gunnar Ingi Schram Gunnarsson og Helgi Benedikt Hólm, eru þarna á leiðinni út í Leiru til að taka þátt í golfnámskeiði hjá GS. Kvöldið áður höfðum við boðið fimm barnabörnum okkar með okkur að sjá Simpson kvikmyndina. Það var mjög gaman. Við tókum Helga Benna með okkur úr Keflavík og náð'um í Skúla og Hlyn í Mosfellsbæinn. Þar fórum við í nýja Mosfellsbakaríið því við vorum sannarlega kaffiþurfi þá stundina. Síðan fórum við í Sambíóin í Mjóddinni, keyptum okkur gos og pop og fleira sem og miða og biðum eftir Helgu og Huga sem voru á leiðinni. Þá kom í ljós að afinn hafði tekið feil á bíóinu og vorum við þarna búin að kaupa miða á Shrek 3! Við skiluðum miðunum og þutum í Smárabíó um leið og við létum Bjössa vita af mistökunum (afans). Við urðum nú að skila af okkur poppi og gosi og kaupa nýjar birgðir. Myndin var skemmtileg. Eftir að henni lauk fór hópurinn á Pizza Hut og þar var snæddur kvöldbiti með ýmsum skemmtilegum uppákomum. Bjössi kom svo og náði í sín börn, Hlyn og Skúla var skilað í Mosó og Helgi Benni kom og gisti á Kirkjuveginum um nóttina. Sem sagt mjög skemmtilegt allt saman.
Posted by Picasa

16 maí 2007

Eins og venja hefur verið undanfarin ár buðu nemendur í 10. bekk Stóru-Vogaskóla kennurum sínum og öðru starfsfólki skólans að bragða á þeim réttum sem bekkurinn hefur æft sig í að framleiða í vetur. Að þessu sinni var boðið uppá kaffiveitingar með ýmiskonar meðlæti. Eins og myndin sýnir þá svignaði borðið af kræsingum sem allar brögðuðust mæta vel. Kristín Hulda og Dísa gerðu réttunum góð skil sem og aðrir er mættu til hófsins. Kunnum við nemendum og kennara þeirra bestu þakkir fyrir.
Posted by Picasa

29 apríl 2007

Einbeiting

Skúli og Hlynur voru í heimsókn þessa helgi og á föstudaginn kom Brynja í heimsókn og var ekki svo lítið hrifin af að hitta frændur sína. Hlynur fékkst til að lesa fyrir hana og ekki skortir einbeitinguna hjá Skúla og Brynju undir lestrinum. Síðar meir fór Brynja í fótbolta með guttunum.
Posted by Picasa