24 október 2006

Litla daman þeirra Gísla og Hrundar tók sig til og vakti góða stund og var að virða fyrir sér veröldina á Norðurvöllum. Brynja kallar hana Barnið og er ósköp góð við hana. Og nú á að skíra hana þann 5. nóv. n.k. Spennandi!! Posted by Picasa

19 október 2006

Hrund eignast dóttur

Jæja þá er komið að því. Í gær kl. 19:17 fæddist á Sjúkrahúsi Keflavíkur dóttir Hrundar Hólm og Gísla S. Halldórssonar. Hún var um 12 merkur að þyngd og 48 cm löng. Fæðingin gekk vel og eins og sjá má er þetta ákaflega myndarleg dama.  Posted by Picasa

03 september 2006

Systurnar og sónarinn


Þær taka sig vel út með nýja tækið á milli sín á stofunni hennar Hrundar. Hilma er stödd hér á landi um stund og var því tilvalið að leyfa henni að prófa sónarinn á ferfætlingi en hún er orðin vön að nota hann á tvífætlinga. Posted by Picasa

Systurnar nýta tæknina á dýralæknastofunni



Nýlega festi Dýralæknastofa Suðurnesja kaup á sónartæki sem nú þegar hefur komið sér vel. Á myndinni sést þegar Hrund og Hilma eru að vinna með sónarinn en þarna var verið að athuga hugsanlegan hjartagalla á hundi.
 Posted by Picasa

18 júlí 2006

Heimsókn í Grasagarðinn

S.l. sunnudag fórum við hjónin að skoða grasagarðinn í Laungardal og fengum okkur kaffi í Kaffi Flóru. Eyddum við drjúgri stund við gömlu þvottlaugarnar og kynntum okkur hina merku sögu þeirra. Veðrið var frábært en okkur rak í rogastans þegar við vorum krafin um 600 kr. fyrir litla sneið af jarðaberjaeplaköku í kaffihúsinu!! Annars er alltaf gaman að koma þarna og virða fyrir sér allar þessar plöntu- og trjátegundir sem þarna eru. Einnig er þó nokkuð fuglalíf þarna. Posted by Picasa

19 júní 2006

Slæm umhirða í Jónasarlundi

Við hjónin brugðum okkur í ökuferð um síðustu helgi og lá leiðin til Akureyrar. Við gistum eina nótt á Hótel Eddu í Laugarlækjarskóla og aðra nótt á Hótel Eddu á Akureyri. Komum við víða við á mörgum skemmtilegum stöðum á leiðinni. Okkur hafði verið bent á að stoppa í Jónasarlundi á bökkum Öxnarár því þar væri gaman að koma. Við gerðum það á hemleiðinni og satt var það að þetta er skemmtilegur áningarstaður og góð upprifjun á sögu Jónasar Hallgrímssonar og æskustöðva hans. Það olli okkur mikilla vonbrigða hversu illa er um þennan stað hirt. Þarna er kominn mikill og góður gróður en hann nýtur sín engan veginn sökum illgresis. Er það von okkar að heimamenn bretti nú upp ermarnar og komi þessum fallega stað í betra horf. Posted by Picasa

13 maí 2006

Hlynur að verða níu ára

Hlynur og Skúli voru í heimsókn hjá okkur þessa helgi og í dag var haldin svona forafmælisveisla því Hlynur á afmæli á morgun en þá verður hann níu ára. Brynja bakaði skúffuköku og var væntanlegt afmælisbarn hæstánægð með það. Kakan fékk svo fyrsta flokks meðferð hjá öllum viðstöddum, ekki síst Brynju litlu. Til hamingju Hlynur Posted by Picasa

30 apríl 2006

Sunnudaginn 30. apríl skruppum við í Reykjavík sem er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Þar hittum við Hafnfirðingana og fengum okkur snarl með þeim á Kaffi Sólon. Það var mjög gaman og að sjálfsögðu var Brynja litla aðalmanneskjan. Hafði hún sérstaka ánægju af því að fara út og skoða fuglana við Bankastrætið. Síðar um daginn hittum við íbúana á Granaskjólinu og þar voru Hlynur og Skúli einnig með félaga sínum Gabríel. Við enduðum svo daginn með því að fara í Laugarásbíó og sáum The Insider - mjög skemmtileg mynd eftir Spike Lee. Posted by Picasa

26 apríl 2006

Þessi fallega mynd var tekin af þeim Huga og Brynju eftir að fermingarveislu Helgu lauk og fjölskyldan hafði safnast saman á Granaskjólinu. Aldrei þessu gátu þessi tvö setið saman í rólegheitum án þess að vera að gantast. Annars er það nú alltaf í góðu svo sem. Posted by Picasa

24 apríl 2006

Ferming Helgu

Helga fermdist sunnudaginn 23. apríl 2006 og fór athöfnin fram í Neskirkju, mjög skemmtileg athöfn þar sem Örn Báður var á meðal prestanna. Veislan var haldin í Glaðheimum í Kópavogi en þar er mjög góður salur í eigu Gusts. Um 100 manns mættu í ágæta veislu, m.a. öll barnabörnin: Helga, Hugi, Helena Brynja, Brynja, Skúli, Helgi Benni og Hlynur. Posted by Picasa

26 febrúar 2006

Svona gerir maður ekki!!

Ábending til unga fólksins
Svona lítur planið vð Ný-Ung og Aðalbíla út eftir hverja helgi. Ástæðan er auðvitað sú að þegar þið eruð að spjalla saman í bílunum ykkar þá finnst ykkur allt í lagi að henda öllu ruslinu ykkar beint út um gluggann og út á planið. Ég trúi því ekki að þið vitið ekki hvað þið eruð að gera, þið mynduð nú varla henda öllu rusli á eldhúsgólfið heima hjá ykkur. Þetta er algjör SÓÐASKAPUR og ætti ekki að sjást. Vinsamlegast safnið ruslinu ykkar saman og hendið því á viðeigandi stöðum. Posted by Picasa

22 febrúar 2006

Lambahryggur í Granaskjólinu

Einn eftirmiðdaginn var hringt og þá var það Bjössi að bjóða í lambahrygg í Granaskjólinu. Við settumst upp í nýja fákinn hennar Brynju og brenndum í bæinn. Vorum á leiðinni að tala um að við gætum kannski hringt í Skúla og Hlyn og fengið þá til að skjótast yfir. En þá vildi svo skemmtilega til að þeir voru í heimsókn í Granaskjólinu og var mjög gaman að hitta þá. Létu þeir vel af sínum hag. Meðfylgjandi mynd af Skúla og Huga var tekin við þetta tækifæri. Gaman var líka að hitta Hlín, Bjössa, Helgu og Huga - allir í góðu formi. Og ekki klikkaði lambahryggurinn frekar en fyrri daginn.

Bestu þakkir. Posted by Picasa

23 janúar 2006

Góðir gestir á Kirkjuveginum


Nú um helgina höfðum við þessa þrjá góðu gesti hjá okkur og var það mjög skemmtilegt. Fyrsta vikan í helgin í langan tíma sem maður hugsaði ekki um neina aðra þætti en að sinna gestunum. Hlynur og Skúli eru orðnir svo hagvanir að þeir ganga að hverjum hlut eins og þeir væru hér á hverjum degi. Að vísu var ekki farið niður að höfn núna enda veðrið ekki þess legt. Í þess stað var farið að skoða sverðið stóra í Innri-Njarðvík og síðan komið við í ísbúðinni. Brynja hafði sérlega gaman af að fá að vera með frændum sínum. Posted by Picasa