Svona lítur planið vð Ný-Ung og Aðalbíla út eftir hverja helgi. Ástæðan er auðvitað sú að þegar þið eruð að spjalla saman í bílunum ykkar þá finnst ykkur allt í lagi að henda öllu ruslinu ykkar beint út um gluggann og út á planið. Ég trúi því ekki að þið vitið ekki hvað þið eruð að gera, þið mynduð nú varla henda öllu rusli á eldhúsgólfið heima hjá ykkur. Þetta er algjör SÓÐASKAPUR og ætti ekki að sjást. Vinsamlegast safnið ruslinu ykkar saman og hendið því á viðeigandi stöðum.
