
Nú um helgina höfðum við þessa þrjá góðu gesti hjá okkur og var það mjög skemmtilegt. Fyrsta vikan í helgin í langan tíma sem maður hugsaði ekki um neina aðra þætti en að sinna gestunum. Hlynur og Skúli eru orðnir svo hagvanir að þeir ganga að hverjum hlut eins og þeir væru hér á hverjum degi. Að vísu var ekki farið niður að höfn núna enda veðrið ekki þess legt. Í þess stað var farið að skoða sverðið stóra í Innri-Njarðvík og síðan komið við í ísbúðinni. Brynja hafði sérlega gaman af að fá að vera með frændum sínum.