Dagbók um daginn og veginn
Við Brynja eignuðumst í haust einstaklega skrítið blóm. Það var reyndar bara rótin þegar við fengum það og fylgdu þær leiðbeiningar með að með því að setja það í vatn myndi það blómgast eftir tvo mánuði, haldast í blóma ákveðinn tíma og geymast síðan í dvala fram að næstu törn. Fyrir nokkrum vikum settuð við blóðmið í vatn og það var eins og við manninn mælt, það fór að vaxa þessi líka svaka stilkur. Hann er nú orðinn hátt í metra á hæð og nú er farið að sjást í blóm! Brynja litla var mjög hissa á þessu aöllu saman.