Þegar við Brynja vorum að koma heim frá afmæli Helga Benna varð geysilega fallegt veður. Þegar við ókum norður Hafnargötuna blasti við okkur ljósin á Berginu og síðan var hálft tungl þar úti við sjóndeildarhringinn og sást aðeins fáeinum tuga metra ofan við bergbrúnina. Við skutumst heim og náðum í myndavél. Þessi mynd er tekin á tíma og þessutan hreyfði ég vélina í ógáti. Útkoman var nokkuð skemmtileg fannst mér.









