Alveg er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Mér finnst það alls ekki mjög langt síðan að Hrund og Gísli tilkynntu að þau ættu von á barni. Síðan hefur ,,hele familien" fylgst spennt með framvindu meðgöngunnar enda hefur Hrund verið einstaklega dugleg við að leyfa okkur að fylgjast með. Fyrir nokkuð löngu vissum við að von var á stúlku og þótti okkur Brynju það stórgott því þá jöfnuðust aðeins hlutföllin meðal barnabarnanna: 3 stúlkur - 4 piltar. Eins og að líkum lætur þá veita blessuð barnabörnin birtu og yl inn í okkar tilveru og reynum við að vera sem mest í sambandi við þau. Það eru ávallt skemmtilegar stundir þegar allir safnast saman saman á Kirkjuveginum. Og nú er sem sagt lítil stúlka fædd. Fram að fæðingu hefur hún verið kölluð Geirlaug en í væntanlegri skírn (fljótlega að ég held) mun hún fá annað nafn til framtíðar. Litla daman er mjög myndarleg, vóg 12 merkur rúmar og mældist 49 sm að lengd. Mjög heilbrigt og fallegt barn með þetta líka mikla hár. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og óskum þess að framtíð hennar og foreldranna verði sem björtust.
Á heimasíðu Hrundar (hrundholm.com) má svo sjá myndir af dömunni.
Þegar þetta er skrifað er undirritaður staddur að Reykjum í Hrútafirði í skólabúðum með bekkinn minn. Meira um það síðar.
07 febrúar 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)