04 desember 2004

Bókakonfekt

Það er löngu orðinn árviss viðburður hjá okkur hjónunum að mæta á Bókakonfekt sem Bókasafnið í Reykjanesbæ, Bókabúð Keflavíkur-Penninn og Menningarfulltrúi Reykjanesbæjar standa fyrir og oftast hinn fyrsta laugardag í jólaföstu. Upphaflega fór þessi viðburður fram í afgreiðslusal bókasafnsins en nú hefur það undið svo upp á sig að ekki dugir minni salur en list-sýningarsalur Duushúsa. Er þar mjög skemmtileg og viðeigandi umgerð um þessa athöfn. Á bókakonfekti er fólki boðið upp á að nokkrir rithöfundar lesa úr nýútkomnum verkum sínum, tónlistafólk treður upp með tónlist sína og þess utan er fólki boðið upp á kaffi og konfekt. Allt þetta undir öruggri stjórn Valgerðar Guðmundsdóttur menningarfulltrúa. Að þessu sinni lásu eftirfarandi úr verkum sínum: Sigmundur Ernir, Þráinn Bertelsson, Gerður Kristný og Jóhanna Kristjánsdóttir. Tónlist fluttu systkinin Ragnheiður og Haukur Gröndal. Þorsteinn Marteinsson bóksali var og á staðnum og gátu viðstaddir keypt viðkomandi bækur á tilboðsverði og aukinheldur fengið áritun höfunda. Þarf ekki að fjölyrða að allt fór hið besta fram, upplestur höfundanna mjög áhugaverður og fengu menn þar góðan nasaþef af bókunum og löngun til að lesa sjálfir meira. Tónlistaflutningurinn var engu síðri því þarna voru á ferðinni gríðarlega efnilegir tónlistamenn. Sérstaklega var gaman að heyra Ragnheiði flytja sönglög við ljóð Ingibjargar Þorbergsdóttur sem einnig var á staðnum (77 ára). Ég hafði síðan tækifæri til að kynnast Ingibjörgu lítilsháttar eftir athöfnina því ég varð fyrir því óláni að bakka á bílinn hennar og þurfti að fylla út tjónaskýrslu af því tilfelli. Komst ég þá að því að þau hjónin eru flutt til Keflavíkur þar sem þau eiga gott skyldfólk (Skúli og Björn Víkingur eru bróðursynir hennar svo einhverjir séu nefndir).



Eftir þetta allt saman skaust ég að jólatrénu á Tjarnartorgi en þá var nýbúið að kveikja á ljósaseríum og jólasveinarnir voru að halda á braut. Þar hitti ég Guðrúnu Árna með hluta af barnabörnunum

Hér má sjá myndir frá þessum viðburðum: http://www.helgiholm.net/bokakonfekt.htm
Látum þetta gott heita í bili.