20 október 2004

Kröfuganga og fundur

Mætti í kröfugönguna í dag og var síðan á fundinum á Ingólfstorgi. Þetta var mjög ánægjulegt hvort tveggja. Ég var mest ánægður með að engin henti í okkur eggjum eða tómötum í göngunni heldur var fólk hið vingjarnlegasta og veifaði til göngufólks. Ágæt dagskrá var á fundinum, góð ávörp og í lokin leiddi Þorvaldur okkar fjöldasöng við annan mann og stóð sig vel eins og eðlilegt var. Allt þetta sýndi samstöðu kennara og er engin vafi á að við munum ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Góðar fréttir berast úr Karphúsi, þ.e. að enn er verið að funda. Mín skoðun er sú að þess verði skammt að bíða að LN opni fyrir einhverjar frekari launahækkanir og að þá stökkvi Ásmundur til með sáttatillögu.

Látum þetta nægja í bili,

hh

#

Skilaboð sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

17 október 2004

Afmæli Brynju

Þá er Afmælið hennar Brynju yfirstaðið og tókst það ákaflega vel. Mjög margir
komu í heimsókn (100 +) og var ekki annað að sjá að öllum liði mjög vel.
Undir stjórn Ölmu flutti starfsfólk Myllubakkaskóla mikinn óð til Brynju
(skáld=Alma) og var gerður góður rómur að honum. Þá fór fram myndasýning
sem Helga og Helena Brynja áttu mestan heiður að. Þegar gestirnir voru
farnir þá sat fjölskyldan saman og Hlín las bréfið að ,,Westan" frá Hilmu og þá gat
afmælisbarnið ekki tára bundist. Síðan flutti Hrund erindi sem var að mestu í
bundu máli. Því næst voru hinar mörgu góðu gjafir skoðaðar og að því loknu
horfðu menn aftur á myndsýninguna saman.

Þessi skemmtilegi dagur gerði það að verkum að maður gleymdi að mestu leyti verkfallinu. Það er bara einlæg von mín að samninganefnd LN mæti til fundar á morgun með eitthvað bitastætt í farteskinu. Það gengur ekki til lengdar að bjóða næstum minna en ekki neitt.

Sjáumst á morgun við Karphúsið kl. 13:00

Helgi

11 október 2004

Og nú er allt komið í strand

Við mættum á fund í H88 í morgun og þar mætti Unnur úr samninganefndinni og sagði okkur fréttir. Nefndirnar hafa verið að tala saman yfir helgina en enn hefur LN ekki komið með nokkuð bitastætt útspil. Lauk viðræðum á árangurs og verður ekki boðað til fundar fyrr en á miðvikudag. Maður er satt að segja kominn á þá skoðun að ekkert gerist fyrr en eftir mánuð í viðbót. Sveitarfélögin ætla sem sagt að semja undir mestri hugsanlegri pressu og fyrra sig ábirgðinni á því að taka með áræðni og sanngirni á kröfum kennara. Þegar á botninn er hvolft þá eru það fyrst og fremst byrjunarlaunin sem um er slegist. Eins og ég hef áður sagt þá eru launin of lág á Íslandi og byrjunarlaun menntað fólks allt of lág. Kennarar eiga nú möguleika ( í okkar mikla góðæri) að færa þessi laun upp á hærra plan og ég skora á þá alla að gefast ekki upp þótt á móti blási. Burtséð frá þessum vandamálum þá eru sem betur fer önnur viðfangsefni í deiglunni: Brynja Árnadóttir fyllir 6. tuginn n.k. sunnudag og er nú verið að undirbúa smá uppákomu í tilefni af því.
Látum þetta gott heita í bili.