18 apríl 2004

Viðburðaríkur dagur

Laugrdaginn 17. apríl fórum við Brynja snemma af stað til Reykjavíkur því okkar beið morgunverður á Granaskjólinu. Við komum við í Björnsbakaríi og vorum mætt hjá Hlín kl. 08:30. Þar hittum við alla fjölskylduna og að auki Helenu Brynju og Helga Benna sem höfðu haft þar næturgistingu. Brynja fór síðan í tíma í hjá Endurmenntastofnun Háskólans en ég fór með Helenu Brynju í Háskólabíó en þar fór fram lokaathöfn á verkefninu Bráðgerð börn sem hún hafði verið þátttakandi í. Helena Brynja tók þátt í hóp sem var að kynna sér lögfræði og kynnti hópurinn ýmislegt sem þau höfðu lært um alþjóðalög er varða himingeiminn. Stóð hbh sig vel eins og við var að búast. Þarna stoppuðum við í tvo tíma en hittum svo Hlín og Brynju sem voru að kaupa fermingargjöf handa Sveini Smára hennar Sveinu en hann á að ferma á morgun. Eftir að Hlín var farin til síns heima fórum við þrjú á flakk. Við versluðum smávegis, borðuðum á Stjörnutorgi í Kringlunni og fórum síðan í Smáralind til að kíkja á bíó. Þar rákumst við á Hlín, Helgu og Huga og varð úr að við fórum öll að sjá myndina Peter Pan og skemmtum við okkur öll ágætlega í þægilegum sætum Smárabíós. Við vorum síðan komin heim um hálfsjö og þá tóku við rólegheit því framundan voru Laugardagskvöld með Gísla Marteini og Spaugstofan. Þá hringdi Hrund og bauð okkur í tertu með Spaugstofunni og var það að sjálfsögðu þegið með þökkum. Fengum við þar hina ágætustu ,,skyrtertu" sem Hrund var að gera tilraun með. Eftir Spaugstofuna var farið í mjög spennandi keppni í Trivial sem lauk með sigri Gísla og Hrundar í bráðabana. Það með var ánægjulegur og langur dagur á enda en það var ánægjulegt að sjá að Kútur og Snúður virðast vera að taka Emblu smátt og smátt í sátt.

16 apríl 2004

Brynja ráðin skólastjóri

Í gær samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að ráða Brynju í stöðu skólastjóra Myllubakkaskóla frá og með 1. ágúst n.k. Fær hún hér með bestu árnaðaróskir með stöðuna og framtíðina.

Helgi

Hrannar Hólm á afmæli á morgun

Það er ótrúlegra en hægt er að koma í orð að Hrannar Hólm verður fjögurra tuga ára gamall á morgun! Það var eins og í gær að ég rölti niður á sjúkrahús í Keflavík með mömmu hans uppúr kl. ellefu kvöldið áður því hún var farin að finna fyrir einhverjum verkum. Nú jæja eins og sönnum verðandi föður sæmdi á þeim tímum þá labbaði ég mér upp á Suðurgötu til tengdó og lagði mig þar. Um miðja nótt var svo hringt og tilkynnt um að frumburðurinn væri fæddur. Mikið var það nú ánægjuleg stund að sjá þau mæðginin eftir átök þeirra þá um nóttina - han bar jú þess greinileg merki í framan. Nú til að gera langa sögu stutta þá var hann vatni ausinn um þrem vikum síðar á Landakostsspítala og skírður Hrannar. Ég ætla að láta fylgja hér með mynd sem tekin var í Þrastarskógi nokkrum árum seinna en það er ekki ólíklegt að einhverjir sjái þar svip með þeim feðgum Hrannari og Helga Benedikt? Til hamingju með afmælið kæri Hrannar.


14 apríl 2004


#
Skilaboð sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone